Fara í efni
Íþróttir

Fjallahjólreiðahelgi HFA haldið áfram í dag

Jónas Stefánsson var efstur heimamanna úr HFA í Endúró-keppninni í fyrra, með næstbesta tímann í heildina og vann A-flokk karla. Mynd: Ármann Hinrik.

Fjallahjólreiðahelgi Hjólreiðafélags Akureyrar hófst í gær með ungduró-keppni yngri iðkenda. Í dag og á morgun er komið að þeim eldri, keppt í endúró í dag og fjallabruni á morgun. Í dag eru keppendur í A-flokki, B-flokki, junior, U17 og rafhjólaflokki í svokölluðu endúró. Keppt er í Hlíðarfjalli og Kjarnaskógi.

Keppni dagsins hefst kl. 13 og eru 44 keppendur samanlagt á ráslistum flokkanna. 

Yngri kynslóðin keppti í gær í grein sem kölluð er ungdúró. 

Sigurvegarar í einstökum aldursflokkum:

Smellið á hvern flokk fyrir sig til að sjá úrslit í viðkomandi flokki.