Vill lífsgæðakjarna við Rangárvelli
Þórhallur Jónsson, oddviti Akureyrarlistans við bæjarstjórnarkosningarnar í vor, varpar fram þeirri hugmynd í grein sem akureyri.net birtir í dag, að lífsgæðakjarni fyrir eldri borgara verði staðsettur við Rangárvelli þar sem nú er gámasvæði bæjarins.
Gert er ráð fyrir 40 íbúðum fyrir eldri borgara á Tjaldsvæðisreitnum og öðru eins á Norðurtorgi, að sögn Þórhalls, „en það er ekki nóg til að mynda lífsgæðakjarna vegna þess að slík þjónusta krefst stærðarhagkvæmni.“
Lífsgæðakjarni – íbúakjarni með samþættri þjónustu fyrir eldri borgara á einum stað – er fyrirhugaður vestan Kjarnagötu í Hagahverfi en gæti risið mikið fyrr við Rangárvelli að mati Þórhalls, „og þegar ríkið er tilbúið væri einnig hægt að bæta við hjúkrunarheimili á svæðinu.“
Glatvarmi frá gagnaveri
„Hugmynd Akureyrarlistans um staðsetningu og uppbyggingu á slíkum kjarna er við Rangárvelli þar sem við flokkum úrgang í dag sem getur ekki talist góð nýting á þessu frábæru svæði,“ segir Þórhallur í greininni. „Þar mætti koma fyrir stórum lífsgæðakjarna með 200-300 íbúðum ásamt því að hafa stóran yfirbyggðan og upphitaðan Eden garð sem nýtir glatvarmann frá nærliggjandi gagnaverum. Það væri algjörlega frábært að nýta þessa orku sem annars færi til spillis til að búa til stað sem bætir lífsgæði allra Akureyringa.“
- Grein Þórhalls: Lífsgæðakjarni við Rangárvelli