Minnihlutinn vildi auglýsa eftir bæjarstjóra
Minnihlutinn í bæjarstjórn Akureyrar er greinilega staðráðinn í að veita meirihlutanum virkt aðhald, því á fyrsta fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar greiddu fulltrúar millihlutans atkvæði gegn ráðningu Berglindar Óskar Guðmundsdóttur í stöðu bæjarstjóra og lögðu til að staðan yrði auglýst laus til umsóknar. Meirihlutinn felldi þá tillögu og staðfesti síðan ráðningu Berglindar.
Þegar ráðningarsamningur við Berglindi var lagður fram á bæjarstjórnarfundinum tók Sindri S. Kristjánsson, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar til máls og lagði fram svofellda tillögu:
Bæjarstjórn frestar staðfestingu framlagðs ráðningarsamnings og felur staðgengli bæjarstjóra að auglýsa stöðu bæjarstjórans á Akureyri lausa til umsóknar.
Nokkrar umræður urðu um tillöguna, þar sem fulltrúar minnihlutans gagnrýndu ráðningarmálin harðlega, en hún var síðan borin upp til atkvæða og felld með 6 atkvæðum meirihlutans (Gunnar Már Gunnarsson B-lista, Sunna Hlín Jóhannesdóttir B-lista, Heimir Örn Árnason D-lista, Arna Rut Gunnarsdóttir D-lista, Óðinn Svan Óðinsson L-lista og Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir L-lista) gegn 5 atkvæðum minnihlutans (Sindri S. Kristjánsson S-lista, Hanna Dóra Markúsdóttir S-lista, Hlynur Jóhannsson M-lista, Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir V-lista og Þórhallur Jónsson A-lista).
Takmörkuð reynsla – samskonar launakjör
Að því búnu var ráðningarsamningur Berglindar borinn upp til atkvæða og samþykktur með atkvæðum meirihlutafulltrúanna gegn atkvæðum minnihlutans.
Að atkvæðagreiðslu lokinni lögðu fulltrúar minnihlutans fram eftirfarandi bókun:
Með því að auglýsa ekki stöðu bæjarstjórans á Akureyri lausa til umsóknar er komið í veg fyrir að faglegt hæfnismat fari fram og útilokað að tryggt sé að hæfasta manneskjan sem völ er á veljist til starfsins. Þá skýtur það skökku við að bjóða einstaklingi með takmarkaða reynslu af sama sviði upp á samskonar launakjör og fyrrum bæjarstjóri hafði, manneskju með umtalsvert meiri starfsreynslu. Launakjör sem munu kosta bæjarsjóð um 40 milljónir króna á ársgrundvelli, upphæð sem jafngildir bróðurpartinum af árlegum kostnaði við brýn verkefni á borð við farteymi inn í grunnskóla Akureyrar.
Þar sem meirihlutinn hefur hvorki sýnt fram á málefnaleg rök fyrir því að ráða ekki fyrrum bæjarstjóra til áframhaldandi starfa né því að fara á svig við faglegt ráðningarferli bæjarstjóra, staðfestum við ekki þennan samning.
Tekið skal fram að Berglind Ósk Guðmundsdóttir vék af fundi við afgreiðslu þessa dagskrárliðar vegna vanhæfis og sat Arna Rut Gunnarsdóttir varabæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins fundinn á meðan.