Laun bæjarstjóra 2,7 milljónir, lækka um 13,4%
Mánaðarlaun Berglindar Óskar Guðmundsdóttur, nýráðins bæjarstjóra á Akureyri, nema rúmum 2,7 milljónum króna á mánuði. Þetta kemur fram í ráðningarsamningi við Berglindi, sem samþykktur var með 6 atkvæðum gegn 5 á fyrsta fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar Akureyrar í gær. Í samningnum kemur einnig fram að bæjarstjóri fær ekki greitt aukalega fyrir setu á fundum bæjarstjórnar, bæjarráðs eða öðrum fundum fastanefnda Akureyrarbæjar.
Mánaðarlaun Berglindar skiptast þannig að föst dagvinnulaun eru 1.804.114 krónur og að auki fær hún greitt stjórnendaálag, sem nemur 45% af mánaðarlaunum. Ofan á stjórnendaálagið leggst 13,04% orlof, þannig að sú greiðsla er samtals 917.717 krónur á mánuði. Samtals eru mánaðarlaunin því 2.721.831 króna.
Í ráðningarsamningnum er stjórnendaálagið skilgreint sem þóknun fyrir unna yfirvinnu og allt áreiti utan dagvinnutíma, undirbúning, ferðatíma, móttökur gesta og hvað annað vinnuframlag sem til fellur utan dagvinnutíma.
Berglind fær 13,4% lægri laun en Ásthildur
Ráðningarsamningur Berglindar er efnislega nánast samhljóða ráðningarsamningi Ásthildar Sturludóttur, fyrrverandi bæjarstjóra. Við lok ráðningartíma hennar námu mánaðarlaunin, að meðtöldu stjórnendaálagi, 3.144.438 krónum. Laun Berglindar eru því 422.617 krónum lægri en laun Ásthildar, eða sem nemur 13,4 prósentum.
Við þetta má bæta að Berglind er kjörinn fulltrúi og nema bæjarfulltrúalaun hennar 462.523 krónum en vegna þess að þessi upphæð er innifalin í bæjarstjóralaununum má segja að Akureyrarbær þurfi í raun aðeins að greiða 10 bæjarfulltrúum laun núna í stað 11 eins og undanfarin ár.
Og rétt eins og Ásthildur fær Berglind greitt fyrir akstur á eigin bifreið í þágu vinnuveitanda. Akureyrarbær leggur henni til fartölvu og farsíma og greiðir kostnað vegna farsímanotkunar. Þá kaupir Akureyrarbær líf- og sjúkdómatryggingu fyrir bæjarstjóra.
Að lokum segir í ráðningarsamningnum að gagnkvæmur uppsagnarfrestur á kjörtímabilinu sé þrír mánuðir. Ef samkomulag verði um starfslok í lok kjörtímabils verði þriggja mánaða uppsagnarfrestur greiddur, auk þriggja mánaða biðlauna.