Rándýrt námskeið eða tilraun – og bitlingar?
Annar fundur nýrrar bæjarstjórnar á kjörtímabilinu er á dagskrá síðdegis í dag. Á meðal dagskrárliða er málefnasamningur nýs meirihluta, en segja má að fyrsti hluti þeirrar umræðu hafi farið fram á fyrsta fundi nýrrar bæjarstjórnar í upphafi mánaðarins þegar ráðningarsamningur Berglindar Óskar Guðmundsdóttur, oddvita D-lista Sjálfstæðisflokks, í starf bæjarstjóra var tekinn til umræðu og afgreiðslu. Þar kom fram hörð gagnrýni frá minnihlutanum á þessa ráðstöfun.
Í stórum dráttum gengur gagnrýni þeirra sem tóku til máls á fundinum út á launakjörin, reynsluleysi nýs bæjarstjóra og þá staðreynd að fráfarandi bæjarstjóri, Ásthildur Sturludóttir, hafi verið afar farsæl í því starfi og hafi sýnt því áhuga að starfa áfram. Bent var á að með beinni ráðningu pólitísks bæjarstjóra án auglýsingar væri ekki tryggt að hæfasta manneskjan fengist í starfið, og ekki víst að Berglind Ósk hefði komið til greina ef auglýst hefði verið, og að hér gæti verið um rándýrt tilraunaverkefni eða námskeið að ræða, sem væri ekki til eftirbreytni í jafn stóru bæjarfélagi, stóru fyrirtæki, eins og Akureyrarbær er. Þá hafi niðurstöður kosninganna alls ekki kallað á að þessi leið yrði valin.

Berglind Ósk Guðmundsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokks, nýr bæjarstjóri á Akureyri, og Óðinn Svan Óðinsson oddviti L-lista, nýr formaður bæjarráðs. Myndin er tekin eftir að fyrstu tölur voru lesnar upp að kvöldi kosningadags. Mynd: Skapti Hallgrímsson
Ekki tryggt að hæfasta manneskjan sé ráðin
Sindri S. Kristjánsson, oddviti Samfylkingar (S-lista), hóf umræðuna og minnti á hvaða kröfur voru gerðar til reynslu, þekkingar og hæfni sem þyrfti til að fá starfið síðast þegar staða bæjarstjóra var auglýst. Þar hafi einmitt komið að málum tveir af þeim þremur flokkum sem nú mynda meirihluta.
„Ég held að það sé alveg óhætt að segja að reyndari manneskju til að gegna starfi bæjarstjórans á Akureyri, þegar kemur að rekstri, þegar kemur að mannauðsmálum og þegar kemur að stefnumótun og stjórnun, er vafalaust hægt að finna ef eftir því væri sannarlega leitað,“ sagði Sindri meðal annars og lagði áherslu á að með þessari ráðstöfun meirihlutans væri ekki endilega tryggt að í stól bæjarstjóra settist hæfasta manneskjan sem völ væri á.
Sindri spurði hvers vegna ekki hafi verið farin sú leið að ráða fyrrverandi bæjarstjóra áfram í ljósi þess að í kjölfar þess að ákvörðun meirihlutans var gerð opinber hafi Ásthildur látið hafa eftir sér að hún hefði sannarlega haft áhuga á að halda áfram störfum ef eftir því hefði verið leitað. „Kona með samanlagt 16 ára reynslu af farsælum rekstri og stjórnun sveitarfélaga,“ sagði Sindri. „Ég verð að segja að mér þykir ekki enn hafa komið fram, svo sómi sé að, rök eða ástæður fyrir því að ráða fyrrum bæjarstjóra ekki áfram til að gegna embættinu.“

Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri á Akureyri tvö síðustu kjörtímabil.
Rándýrt námskeið og tilraunaverkefni?
Hlynur Jóhannsson oddviti Miðflokks (M-lista), lagði áherslu á að ekki mætti taka gagnrýnina þannig að verið væri að ráðast á einstakling. „Þetta er númer eitt, tvö og þrjú það að við viljum ekki að Akureyrarbær sé eitthvert tilraunaverkefni fyrir einhverja aðila. Þetta er bara alltof stórt batterí til þess.“
Þórhallur Jónsson oddviti Akureyrarlista (A-lista), tók í sama streng, lýsti óánægju með ráðninguna og sagði að farsælla hefði verið að halda Ásthildi áfram í starfi bæjarstjóra. „Ég held, með fullri virðingu fyrir þeim aðila sem á að ráða hér sem bæjarstjóra, að ef við myndum óska eftir og auglýsa eftir bæjarstjóra fyrir Akureyri, þá er ég ekkert alveg viss um að hún kæmi til greina. Þetta snýst nefnilega um það að að við erum að reka mjög stórt bæjarfélag, þetta er mjög stórt fyrirtæki og þetta gæti verið alveg rándýrt námskeið sem við erum að bjóða upp á núna, þannig að ég skil ekki alveg á hvaða vegferð þið eruð,“ sagði Þórhallur og beindi orðum sínum að meirihlutanum.

Bæjarstjórn Akureyrar fyrir fyrsta fund kjörtímabilsins, þriðjudaginn 2. júní Frá vinstri: Þórhallur Jónsson, Heimir Örn Árnason, Sunna Hlín Jóhannesdóttir, Sindri Kristjánsson, Gunnar Már Gunnarsson, Berglind Ósk Guðmundsdóttir, Hanna Dóra Markúsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Hlynur Jóhannsson, Jana Salóme I. Jósepsdóttir og Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir. Mynd af akureyri.is.
Skipt um skoðun fyrir bitlinga?
Gunnar Már Gunnarsson, Framsóknarflokki (B-lista) og nýr forseti bæjarstjórnar, sagði tillögur um ráðningu pólitísks bæjarstjóra hafa komið fljótt fram frá Sjálfstæðisflokknum í meirihlutaviðræðunum og viðbrögð samstarfsflokkanna hafi strax verið góð. „Ég hef verið þeirrar gæfu aðnjótandi að vinna með Berglindi og treysti henni mjög vel til verka. Annars hefði ég ekki samþykkt þetta,“ sagði Gunnar Már.
Hlynur benti á að flokkssystir Gunnars Más, Sunna Hlín Jóhannesdóttir, hafi haft orð á því í kosningabaráttunni að hún vildi auglýsa starf bæjarstjóra, en hafi horfið strax frá því þegar Framsóknarflokkurinn fékk embætti forseta bæjarstjórnar, af því að annars hefði flokkurinn ekki fengið neitt stórt embætti. „Þetta er orðið mjög dapurt þegar það er farið að snúast um bitlinga, en ekki um hagsmuni Akureyringa,“ sagði Hlynur meðal annars.

Bæjarfulltrúar meirihlutans í bæjarstjórn Akureyrar eftir að skrifað var undir málefnasafning 21. maí, fimm dögum eftir kosningar. Frá vinstri: Gunnar Már Gunnarsson og Sunna Hlín Jóhannesdóttir, fulltrúar Framsóknar, þá Sjálfstæðismennirnir Heimir Örn Árnason og Berglind Ósk Guðmundsdóttir og þá L-listafólkið Óðinn Svan Óðinsson og Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir. Mynd: Skapti Hallgrímsson.
Ekki með í ásýndarherferð Sjálfstæðiflokksins
„Mér finnst við vera að fara langt aftur í tímann með því að taka svona U-beygju í bæjarmálum hér,“ sagði Hlynur meðal annars. Hann rifjaði upp að tveir af núverandi meirihlutaflokkum Framsóknarflokkurinn og L-listinn, auk Samfylkingarinnar, hafi ráðið Ásthildi Sturludóttur í starfið á sínum tíma. „Þá var hún ráðin hér sem faglegur og ópólitískur bæjarstjóri, fyrir alla flokka … og hún hefur staðið sig mjög vel í því hlutverki, reynst okkur afar vel. Það er mjög sérstakt að sjá hana svo rekna héðan í burtu þegar sömu tveir flokkar, L-listi og Framsókn, sem réðu hana inn, og Sjálfstæðisflokkurinn – og hún er sjálfstæðiskona – að þau skuli fara þessa vegferð. Mér finnst það afar sorglegt og ekki góð byrjun hjá þessum meirihluta,“ sagði Hlynur. „Það er ekki verið að ráða núna bæjarstjóra fyrir Akureyringa, eða fyrir okkur hér, alla flokkana. Það er númer eitt, tvö og þrjú verið að ráða bæjarstjóra fyrir meirihlutann, eða jafnvel bara fyrir Sjálfstæðisflokkinn, sem er afar einkennilegt í jafn stóru bæjarfélagi …“
Sindri hafði áður orðað þetta sama á svipaðan hátt: „En hér í okkar ágæta bæ virðist stefnubreyting nýs meirihluta einungis hafa þann tilgang að styðja við ásýndarherferð Sjálfstæðisflokksins á landsvísu og ég hef bara fyrir mína parta ekki sérstakan áhuga á að taka þátt í því verkefni,“ sagði Sindri.

Heimir Örn Árnason, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, og Gunnar Már Gunnarsson bæjarfulltrúi Framsóknar og forseti bæjarstjórnar.
Með óbragð í munni?
Hlynur lagði meðal annars áherslu á hve gríðarlega stórt verkefni það væri að stýra Akureyrarbæ, stærsta fyrirtæki bæjarins með 1.800-2.000 starfsmenn. Berglind Ósk hefði hins vegar ekki reynslu af mannaforráðum og ekki reynslu af að reka fyrirtæki.
„Það skiptir alveg gríðarlegu máli að starfsfólki líði vel hérna. Það á ekki að lifa í einhverri óvissu við það að hér taki einhver við sem hefur aldrei verið í þessari stöðu áður. Við hljótum að eiga að vanda til verka þegar við erum að ráða hæstráðanda hér í bænum. Mér finnst bara meirihlutanum hafa orðið mjög mikið á þarna, strax í byrjun,“ sagði Hlynur. Hann benti á að óreyndir bæjarfulltrúar væru að taka við stjórn bæjarins og þeim hefði ekkert veitt af því að hafa reyndan bæjarstjóra til að leiðbeina sér, að minnsta kosti fyrstu tvö árin, „í stað þess að henda öllu frá sér. Ég trúi ekki öðru en að þið séuð með smá óbragð í munni að fara svona leið,“ sagði Hlynur.

Stemningin hjá oddvitum framboðanna í bæjarstjórnarkosningunum var góð rétt áður en fyrstu tölur voru birtar í Verkmenntaskólanum seint að kvöldi kjördags. Frá vinstri: Sindri S. Kristjánsson, Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir, Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir, Sunna Hlín Jóhannesdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Berglind Ósk Guðmundsdóttir, Hlynur Jóhannsson og Þórhallur Jónsson. Mynd: Skapti Hallgrímsson
Gunnar Már hafði meðal annars nefnt reynslu Berglindar Óskar, en Hlynur sagði skipta máli hvers konar reynslu væri um að ræða. „Það er engin reynsla fyrir okkur hér í bæjarstjórn að vera með einhvern sem sat á Alþingi. Það segir bara ekki neitt. Við horfðum nú á Jón Gnarr vera borgarstjóra. Jesús Kristur, myndum við vilja fá hann hingað?“
Í klappliði Áslaugar Örnu
Hlynur greip á lofti þá fullyrðingu Gunnars Más að Berglind Ósk bæri hag Akureyrar fyrir brjósti og rifjaði upp þegar brottflutningur fangelsisins frá Akureyri var á dagskrá.
„Allir flokkar börðust hér saman og lögðu sig í líma við það. Frábært fangelsi, frábært starfsfólk, en ekki kom ein ræða frá Alþingismanninum Berglindi þar til að hjálpa okkur. Þar var hún í klappliði Áslaugar Örnu og sagði ekki orð til að hjálpa okkur.“ Hlynur spurði því næst hvernig fólk á Akureyri eigi að treysta því að Berglind Ósk muni berjast með kjafti og klóm fyrir Akureyri.
Að kaupa sér lið til að verða þjálfari?
Hlynur tók líkingu úr íþróttum og sagði þessa ráðningu líkjast því að maður með enga kunnáttu en nóg af peningum myndi einfaldlega kaupa sér lið til að geta orðið þjálfari af því að hann langaði í starfið. „Ég trúi ekki að þið viljið hafa þetta svona eftir að hafa farið í gegnum svona mörg farsæl ár hér á Akureyri. Miklar framkvæmdir í gangi, topprekstur, og þið farið í þetta, einhverja algjöra óvissutíma. Mér finnst fólk vera að misnota aðstöðu sína allhrikalega. Og þetta heitir að misnota vald sitt,“ sagði Hlynur.

Meirihlutasvipur! Framsóknarkonan Sunna Hlín Jóhannesdóttir og Berglind Ósk Guðmundsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins horfast kankvísar í augu skömmu áður en fyrstu tölur voru birtar að kvöldi kosningadags. Óðinn Svan Óðinsson oddviti L-lista er á milli þeirra. Mynd: Skapti Hallgrímsson
Úrslitin kölluðu ekki á þetta
Þá bentu bæði Hlynur Jóhannsson og Þórhallur Jónsson á að niðurstöður kosninganna hafi ekki verið afgerandi og væru ekki ákall kjósenda um pólitískan bæjarstjóra. Hlynur benti á að L-listinn hafi tapað manni og B-listinn hafi tapað fylgi, en haldið sínum tveimur bæjarfulltrúum. „Þetta leiddi til þess að það voru engar afgerandi kosningar hér, þær voru frekar flatar. Þetta sýndi alls ekki fram á að hér kæmi pólitískur bæjarstjóri, bara langur vegur frá því,“ sagði Hlynur.
Þórhallur tók í sama streng um niðurstöður kosninganna: „Ef ég rýni í þær þá var enginn að kalla eftir pólitískum bæjarstjóra. Þá hefðuð þið fengið miklu, miklu skýrari ábendingu um það í úrslitum kosninganna. Það var ekki þannig,“ sagði Þórhallur meðal annars.
Við erum meirihluti
Heimir Örn Árnason, Sjálfstæðisflokki, sagði gagnrýnendur ráðningarinnar vera að vega að starfi nýrra bæjarfulltrúa í framtíðinni. Það taki einfaldlega tíma og mikla vinnu að koma sér inn í starfið, en í ráðhúsinu sé mikið af hæfu starfsfólki og með mikla reynslu sem kemur fólkinu inn í starfið. Heimir fullyrti meðal annars að í rosalega mörgum bæjarfélögum hafi heppnast vel að vinna með pólitískum bæjarstjóra, eins og hann orðaði það. „Þetta er víst bara pólitík. Við fengum sex menn kjörna og erum bara meirihluti. Fundum strax góða samvinnu á fyrstu fundum,“ sagði Heimir, en tók um leið fram að síðasti meirihluti hafi gengið mjög vel.
Bæjarfulltrúar L-listans tjáðu sig ekki um málið.
Upptöku af umræðum um ráðningarsamning bæjarstjóra má finna á YouTube-síðu Akureyrarbæjar - sjá hér.