Fréttir
Hvers vegna ekki til Kaupmannahafnar?
10.11.2026 kl. 22:00
Mynd: Skapti Hallgrímsson
„Ég verð að segja það upphátt hversu mikið ég hefði óskað mér að Icelandair hefði verið að tilkynna okkur Norðlendingum og Austfirðingum að flugfélagið hygðist hefja flug frá Akureyrarflugvelli til Kaupmannahafnar frekar en Tenerife og þá tvisvar í viku. Það hefði haft miklu meiri áhrif í þá veru að styrkja byggðina fyrir norðan og austan.“
Þannig hefst pistill Njáls Trausta Friðbertssonar, alþingismanns Norðausturkjördæmis, sem hann birti á Facebook eftir að Icelandair tilkynnti um nýja flugleið í áætlunarflugi næsta vetur – frá Akureyri til Tenerife á Kanaríeyjum. Flogið verður einu sinni í viku á þriðjudögum frá 19. október 2027 til 18. apríl 2028.
Framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands tekur í sama streng í ummælum við færslum Njáls Trausta og bæjarfulltrúi á Akureyri sendi frá sér grein um málið, þar sem hann lýsir sömu skoðunum.

Njáll Trausti Friðbertsson, Arnheiður Jóhannsdóttir og Þórhallur Jónsson.
Njáll Trausti rifjar upp í pistlinum að beint áætlunarflug milli Akureyrar og Kaupmannahafnar á sér lengri sögu en margir gera sér grein fyrir. Þar komu við sögu Air Greenland, sem hóf flug á leiðinni vorið 2003, síðar Iceland Express og loks Niceair.
- Nánar hér um upprifjun Njáls Trausta: Góð sætanýting í flugi til Kaupmannahafnar
Njáll Trausti starfaði í áraraðir sem flugumferðarstjóri á Akureyrarflugvelli. „Ég hef lengi talað (skrifað) fyrir því að byggja alþjóðaflugvellina á landsbyggðinni þannig upp að hægt væri að nýta þá til millilandaflugs. Sú uppbygging hefur gengið með ágætum á undanförnum árum þó ýmislegt megi telja til sem vinna þarf í til að styrkja millilandaflugið um alþjóðlegu flugvellina tvo í Norðausturkjördæmi,“ skrifar hann.
„Það hefur lengi verið mín skoðun að flug til Kaupmannahafnar hefði gríðarlega mikið að segja fyrir íbúa á Norður- og Austurlandi. Fyrir ferðaþjónustuna myndi slíkt flug einnig skipta gríðarlega miklu máli. Slíkt flug gæti verið hlut af „Stop Over“ markaðskerfi Icelandair sem myndi skapa mikil tækifæri í markaðssetningu, myndi styðja uppbyggingu heilsárs ferðaþjónustu um allt land.“
Njáll Trausti segir að halda eigi áfram að vinna að því að koma á reglulegu flugi milli Akureyrar og Kaupmannahafnar á ný. „Það hefur verið kallað eftir því um langt árabil að Icelandair flygi á milli Akureyrar og Kaupmannahafnar. Það myndi styrkja byggðina á Norður- og Austurlandi mikið. Það hefði líka mikið að segja um það mikla og stóra verkefni sem er að byggja upp heilsársferðaþjónustu á því landsvæði sem stendur fjærst Keflavíkurflugvelli,“ segir þingmaðurinn.
Vonandi að sýna á fyrstu spilin í langtímastefnu
Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands, tekur undir sjónarmið Njáls Trausta. Hún skrifar athugasemd við færslu þingmannsins:
„Sammála þér, Kaupmannahafnarflug myndi styðja við uppbyggingu og fjárfestingu á svæðinu, fyrir ferðaþjónustuna sem og aðrar atvinnugreinar. Íbúar hafa kallað eftir þessu síðan Niceair hætti og löngu búið að sýna fram á að eftirspurn er til staðar í báðar áttir í gegnum Köben auk þess sem þá opnast inn á Asíumarkað.“
Arnheiður segir að flug Icelandair til Tenerife fari „í beina samkeppni við easyJet sem íbúar á svæðinu hafa nýtt í auknum mæli til London, Manchester og ekki síður til að tengja við Spán. Þetta nýja flug mun ekki koma með ferðamenn til Norður- og Austurlands nema í mjög litlu mæli. Icelandair er vonandi með þessu að sýna á fyrstu spilin í langtímastefnu sem styður við þróun á svæðinu frekar en að stilla upp samkeppni við flug sem gengur vel. Kaupmannahöfn hlýtur að vera næst.“
Til höfuðs easyJet?
Þórhallur Jónsson bæjarfulltrúi Akureyrarlistans sendi frá sér grein fljótlega eftir að Icelandair tilkynnti um áætlunarflug milli Akureyrar og Tenerife og lýsti svipuðum sjónarmiðum og þau Njáll Trausti og Arnheiður gerðu síðar í dag.
Þórhallur kveðst setja spurningamerki við flug milli Akureyrar og Tenerife, um leið og hann fagni því. Er þetta raunverulega það sem Akureyringar og markaðurinn hér hefur verið að kalla eftir? spyr hann. „Flug til Tenerife getur vissulega verið kærkominn kostur fyrir þá sem vilja komast í sólina úr skammdeginu en það kemur ekki í stað reglulegra millilanda tenginga sem nýtast fólki í daglegu lífi, atvinnulífinu og viðskiptum,“ segir Þórhallur.
Beint flug frá Akureyri til Kaupmannahafnar lengi verið skýr ósk íbúá á Norðurlandi, segir bæjarfulltrúinn og veltir fyrir sér hvað vaki fyrir Icelandair. „Það er erfitt að skilja þær áherslur sem birtast í áformum Icelandair um millilandaflug frá Akureyri. Nú virðist sem að fyrirhuguðu flugi Icelandair frá Akureyri til Tenerife, sem á að hefja næsta haust á sama tímabili og easyJet flýgur til Akureyrar frá Gatwick, sé stillt upp til höfuðs easyJet nánast eins og það sé samkeppni við framboð á millilandaflugi um Akureyrarflugvöll sem easyJet hefur sinnt en við vitum að margir Akureyringar hafa nýtt flugið til að komast áfram til Tenerife,“ skrifar Þórhallur.