Fara í efni
Fréttir

Þrjú verkefni fengu styrk úr Sprotasjóði

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, ásamt styrkþegum og Braga Þór Svavarssyni stjórnarformanni Sprotasjóðs. Mynd: stjornarradid.is.

Þrír skólar á Akureyri fengu styrk úr Sprotasjóði fyrir skólaárið 2026-2027 en styrkirnir voru afhentir um nýliðna helgi. Alls bárust sjóðnum 39 umsóknir og 20 verkefni hlutu styrk. Samtals var úthlutað  tæpum 65 milljónum króna að þessu sinni.

Sprotasjóður leik- grunn- og framhaldsskóla styður við þróun og nýjungar í skólastarfi í samræmi við stefnu stjórnvalda og aðalnámskrá viðkomandi skólastiga.

Áherslusvið sjóðsins vegna ársins 2026 voru tvenns konar:

  • Grunnþáttur menntunar: Lýðræði og mannréttindi.
  • Nýjar leiðir í kennsluaðferðum og námsmati með sjálfstæði og virkni nemenda að markmiði.

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, og Bragi Þór Svavarsson, formaður stjórnar sjóðsins, afhentu styrkina við hátíðlega athöfn sl. laugardag. Þessir skólar á Akureyri hlutu styrk í ár:

  • Lundarsel - Pálmholt: Að undrast – samræður í leikskólastarfi. Styrkupphæð 3.360.000 krónur.
  • Glerárskóli: Fjársjóðskort og fjölbreyttar kennsluaðferðir. Styrkupphæð 2.500.000 krónur.
  • Iðavöllur: Fjárfestum í framtíðinni – jöfn tækifæri til náms. Styrkupphæð 2.000.000 krónur.