Hvað á nýja gatan að heita?
Skipulagsráð leitar að nafni á nýja götu sem varð til með byggingu leikskólans Hagasteins, rúmlega 100 metra spotta sem liggur með fram leikskólanum, í suður frá Naustagötu.
Með uppbyggingu Hagasteins við Naustagötu varð til ný gata austan megin við lóðina þar sem leikskólinn er staðsettur og á þessa nýju götu vantar nafn. Skipulagsráð óskaði eftir tillögum ungmennaráðs að nýju götuheiti og mun í framhaldinu, þegar ein eða fleiri tillögur að nafni liggja fyrir, óska umsagnar nafnanefndar.
Nafnanefndin hefur það meginverkefni að gera tillögur og veita ráðgjöf til bæjarstjórnar, bæjarráðs, skipulagsráðs og annarra ráða um nöfn á byggingum, götum, hverfum og örnefnum sem ætla má að einkenni bæjarmyndina um langan tíma. Núverandi nafnanefnd, samkvæmt upplýsingum á vef Akureyrarbæjar, var skipuð í október 2022 til ársins 2026, en í henni sitja Brynjar Karl Óttarsson, kennari og formaður Sagnalistar, Hanna Rósa Sveinsdóttir sagnfræðingur og Kristín Árnadóttir, fyrrverandi íslenskukennari.
Sextánda stysta gata bæjarins?
Nýja nafnlausa gatan er samkvæmt mælingu í kortasjánni map.is/akureyri rétt rúmir 100 metrar að lengd. Hún er þó nokkuð frá því að verða stysta gata Akureyrar. Í fljótu bragði og með óvísindalegri athugun blaðamanns í kortasjánni fundust 15 götur innan Akureyrar sem eru styttri en þessi nýja nafnlausa gata.
Laugargata er um 98 metra löng, Grundargata og Þrumutún eru um 90 metra langar, Búðasíða um 81 metri, Krabbastígur er rétt um 77 metrar að lengd, Skálagerði og Spónsgerði eru rétt um 70 metrar, Möðrusíða um 65 metrar, Grímseyjargata og Háagerði um 62 metrar, gata sem á korti heitir Oddeyrarbryggja gæti skilgreinst á bilinu 45-60 metrar en líklega deila tvær eða þrjár götur silfursætinu sem næststystu götur Akureyrar, Bankastígur, Fróðasund og Kolgerði, sem allar eru um 42 metrar að lengd. Sölvastígur telst líklega stysta gata bæjarins, um 35 metrar.
Upptalningin hér að ofan miðast við Akureyri, en ef leitað er innan sveitarfélagsins alls bætist við gatan Búðartangi í Hrísey, sem er um 75 metrar að lengd.
Listinn hefur verið uppfærður frá því að fréttin birtist fyrst.