Hægja á framkvæmdum, lántökuþörf eykst
Ákvörðun um að gjaldskrár Norðurorku hækkuðu ekki um meira en 2,5% hefur veruleg áhrif á áætlaðar tekjur fyrirtækisins og hefur fjárfestinga- og fjárhagsáætlun félagsins verið endurskoðuð í samræmi við það. Rekstur fyrirtækisins verður skoðaður ofan í kjölinn og hagræðingartækifæra leitað. Með lægri tekjum en áætlaðar voru eykst lántökuþörf félagsins á næstu árum. Hægt verður á ákveðnum framkvæmdum. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í skriflegu svari Eyþórs Björnssonar, forstjóra Norðurorku, við fyrirspurn akureyri.net.
Ný fjárfestinga- og fjárhagsáætlun
Ný stjórn Norðurorku sem kjörin var á aukaaðalfundi félagsins í október hefur ásamt starfsfólki unnið að endurskoðun fjárfestinga- og fjárhagsáætlana í framhaldi af ákvörðun aukaaðalfundar að takmarka hækkanir gjaldskráa við 2,5%. Endurskoðaðar áætlanir voru samþykktar af stjórn þann 10. nóvember og í framhaldi af því í bæjarráði Akureyrarbæjar þann 19. nóvember. Hluthafafundur Norðurorku verður haldinn 30. nóvember þar sem fjárhagsáætlun félagsins verður borin upp til samþykktar að nýju.

Ný stjórn og forstjóri Norðurorku eftir auka aðalfundinn í október, fyrir fyrsta stjórnarfund. Frá vinstri: Eyþór Björnsson forstjóri, Jana Salóme Ingibjargar Jósefsdóttir (varamaður í stað Hlyns Jóhannssonar sem var erlendis), Preben Jón Pétursson, Helga Björg Eiríksdóttir, Ágúst Torfi Hauksson og Arna Rut Gunnarsdóttir. Mynd: Skapti Hallgrímsson
Samkvæmt fjárfestingaáætlun næstu fimm ára verða heildarfjárfestingar fyrirtækisins tæpir 2,3 milljarðar á næsta ári, en komnar niður í tæpa 1,2 milljarða árið 2031. Hitaveitan er fyrirferðarmest í fjárfestingum fyrirtækisins, en á þremur af næstu fimm árum eru um yfir 50% af áætluðum fjárfestingum vegna hitaveitu. Það hlutfall er þó innan við 40% árin 2029 og 2031.
Áætlaðar fjárfestingar næstu fimm ára:
- 2027: 2.286 milljónir króna.
- 2028: 2.280 milljónir króna.
- 2029: 1.585 milljónir króna.
- 2030: 1.638 milljónir króna.
- 2031: 1.192 milljónir króna.
Fram kemur í svari Eyþórs að ekki séu margir kostir í stöðunni hvað breytingar á fjárfestingaáætlun varðar, en einhverju verður þó hnikað til eins og hægt er. Meðal annars verður seinkun á því að ný borhola við Ytri-Haga á Árskógsströnd komi í virkni inn á kerfi hitaveitunnar. Hann segir þó einnig að gangi væntingar um lækkun verðbólgu og bata í efnahagsmálum eftir muni það skila ábata til allra, líka Norðurorku.
Fjárhagsáætlun Norðurorku fyrir næsta ár gerir ráð fyrir rekstrartekjum upp á rúma 5,9 milljarða króna og rekstrarafgangi upp á tæpar 844 milljónir króna. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) er áætlaður rúmir 2,2 milljarðar króna á næsta ári, afskriftir um 834 milljónir króna og fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur tæpar 546 milljónir króna.
Lægri tekjur, reksturinn skoðaður, hægt á framkvæmdum
„Ákvörðun um að gjaldskrár hækkuðu einungis um 2,5% hefur veruleg áhrif á áætlaðar tekjur fyrirtækisins. Fyrirtækið er því að skoða reksturinn ofan í kjölinn til að finna tækifæri til hagræðingar í rekstrinum. Til að bregðast við breyttum forsendum var reynt að hnika til fjárfestingum eftir því sem hægt er, en framkvæmdir og fjárfestingar Norðurorku ráðast að lang stærstum hluta af ákvörðunum og framkvæmdum annarra en félagsins sjálfs. Af þeim sökum á Norðurorka ekki marga kosti hvað breytingar á fjárfestingaáætlun varðar. Það var því ákveðið að hægja á framkvæmdum við virkjun borholu á Ytri Haga og aðveituæð þaðan til Hjalteyrar. Það seinkar talsvert því að sú borhola komi í virkni inn á kerfi hitaveitunnar og er nú gert ráð fyrir því að það takist á seinni hluta ársins 2028 en áður hafði verið stefnt á árslok 2027. Heildar fjárfestingaáætlun næstu fjögurra ára breytist ekki þar sem ekki eru á áætlun verkefni sem hægt er að hætta við.
- Meirihluti stjórnar Norðurorku samþykkti í október að hækka gjaldskrár tveggja af þremur veitum sínum umfram þá yfirlýstu stefnu Akureyrarbæjar að halda gjaldskrárhækkunum við 2,5% að hámarki. Samþykktin hljóðaði upp á eftirfarandi hækkanir: vatnsveita 2,5% - rafveita 5% - hitaveita 5,5% - fráveita 7%. Þessi ákvörðun var rökstudd í fundargerð og hækkanirnar taldar nauðsynlegar að mati stjórnar „til að tryggja afhendingaröryggi, mæta uppsafnaðri endurnýjunarþörf og styðja áframhaldandi uppbyggingu á þjónustusvæðinu,“ eins og segir í fundargerð þann 13. október. Meirihluti og minnihluti stjórnar bókuðu ítarlega um þessa ákvörðun.
- Aukaaðalfundur Norðurorku sem haldinn var 20. október samþykkti að gjaldskrár skyldu ekki hækkaðar umfram 2,5% og tengdist sú ákvörðun þátttöku sveitarfélaga og annarra í „þjóðarsátt“ um átak til að halda niðri verðbólgu og tryggja að forsendur kjarasamninga myndu halda. Í framhaldinu fólu eigendur Norðurorku – Akureyrarbær, Eyjafjarðarsveit, Grýtubakkahreppur, Hörgársveit, Svalbarðsstrandarhreppur og Þingeyjarsveit – stjórn fyrirtækisins að taka fjárfestinga- og fjárhagsáætlun til frekari vinnslu miðað við að gjaldskrár hækkuðu ekki meira en 2,5%.