Fara í efni
Fréttir

Gjaldskrá hækkar að hámarki um 2,5%

Gjaldskrá Norðurorku verður ekki hækkuð um meira en 2,5% um áramótin. Þetta var ákveðið á auka aðalfundi fyrirtækisins í morgun. Meirihluti stjórnar vildi hækka gjaldskrá rafmagns um 5%, hitaveitu um 5,5% og fráveitu um 7% en eigendur fyrirtækisins, fjögur sveitarfélög við Eyjafjörð auk Þingeyjarsveitar, voru sammála um að ekki væri hægt að ganga svo langt.

Akureyrarbær á 98% hlut í Norðurorku. Í umræðum um fjárfestingar- og fjárhagsáætlun fyrirtækisins í morgun lýsti Berglind Ósk Guðmundsdóttir, bæjarstjóri á Akureyri, „gríðarlegum vonbrigðum“ með þá hækkun sem stjórnin hafði samþykkt,  og sagði ekki annað hægt en fylgja þeirri „þjóðarsátt“ að gjaldskrárhækkanir yrðu ekki umfram 2,5%. Fulltrúar annarra eigenda tóku undir það sjónarmið og tillaga Berglindar Óskar í þá veru var samþykkt samhljóða.

Nýrri stjórn var falið að „taka fjárfestingar- og fjárhagsáætlun til frekari vinnslu miðað við að gjaldskrá hækki ekki meira en 2,5%,“ eins og segir í tilvísunartillögunni.

Söguleg stjórn

Ný stjórn var kjörin á fundinum og hún er söguleg að því leyti að í fyrsta sinn skipa hana ekki einungis fulltrúar stjórnmálaflokka. og hingað til hafa allir fimm stjórnarmenn verið fulltrúar flokkanna í bæjarstjórn. Frá og með deginum í dag eru þeir þrír; Preben Jón Pétursson (fulltrúi L-lista) sem kjörinn var stjórnarformaður, Hlynur Jóhannsson (Miðflokki) og Arna Rut Gunnarsdóttir (Sjálfstæðisflokki).

Auglýst var eftir tveimur óháðum fulltrúum til setu í stjórn, tugir sóttu um og fyrir valinu urðu Ágúst Torfi Hauksson og Helga Björk Eiríksdóttir. Þau voru því kjörin í stjórnina í morgun.

 

Ný stjórn og forstjóri Norðurorku eftir auka aðalfundinn í morgun, fyrir fyrsta stjórnarfund. Frá vinstri: Eyþór Björnsson forstjóri, Jana Salóme Ingibjargar Jósefsdóttir (varamaður í stað Hlyns Jóhannssonar sem er erlendis), Preben Jón Pétursson, Helga Björg Eiríksdóttir, Ágúst Torfi Hauksson og Arna Rut Gunnarsdóttir. Mynd: Skapti Hallgrímsson