Vilja hækka gjaldskrá umfram stefnu bæjarins
Meirihluti stjórnar Norðurorku vill hækka gjaldskrá fyrirtækisins meira um næstu áramót en yfirlýst stefna Akureyrarbæjar er varðandi slíkar hækkanir. Akureyrarbær á 98% hlut í Norðurorku, bæjarstjórinn segir frekar óheppilegt að fyrirtækið fari ekki eftir þeirri línu sem bærinn ætli að setja og segir mögulegt að ákvörðun stjórnar Norðurorku verði breytt.
Þrír stjórnarmenn Norðurorku af fimm samþykktu á fundi í síðustu viku að gjaldskrá hækki um áramót sem hér segir: vatnsveita 2,5% – rafmagn 5% – hitaveita 5,5% – fráveita 7%. Það voru fulltrúar Sjálfstæðisflokks, L-lista og Miðflokks sem samþykktu hækkun en fulltrúar Samfylkingar og VG voru á móti. Sjálfstæðisflokkur, L-listi og Framsókn eru í meirihlutasamstarfi í bæjarstjórn en Framsókn á ekki fulltrúa í stjórn Norðurorku.
Þess má geta að um síðustu áramót hækkaði gjaldskrá hitaveitu um 5,1%, rafveitu um 4,9%, fráveitu um 14,5% en gjaldskrá vatnsveitu hélt óbreytt.
Nánar um rökstuðning meirihlutans fyrir hækkun neðar í fréttinni.
„Við munum ekki láta okkar eftir liggja ...“
Bæjarráð Akureyrar samþykkti í sumar að stefnt skyldi að því að „halda gjaldskrám bæjarins vegna þjónustu við fjölskyldur óbreyttum, að því gefnu að forsendur kjarasamninga haldist.“ Jafnframt yrði skoðað „hvort svigrúm verði til lækkunar á álagningarprósentu fasteignagjalda, með sérstakri áherslu á atvinnuhúsnæði ...“ Einnig var samþykkt samhljóða að laun bæjarfulltrúa og bæjarstjóra hækkuðu ekki um mánaðamót júní og júlí eins og þau áttu að gera skv. launavísitölu.

Bæjarráð kvaðst í sumar senda „skýr skilaboð um að ákvarðanir í rekstri taki mið af því sameiginlega markmiði að draga úr verðbólgu og lækka vexti“ og að sveitarfélögum gegni „mikilvægu hlutverki með því að sýna hófsemi við ákvörðun gjaldskráa og sýna í verki að þau séu reiðubúin að leggja sitt af mörkum til að styrkja forsendur farsælla kjarasamninga og stöðugs efnahagsumhverfis. Við munum ekki láta okkar eftir liggja þegar kemur að því að rækja það hlutverk okkar.“
Hækkanir nauðsynlegar
Gjaldskrárhækkanir um næstu áramót eru nauðsynlegar, að mati stjórnar Norðurorku, „til að tryggja afhendingaröryggi, mæta uppsafnaðri endurnýjunarþörf og styðja áframhaldandi uppbyggingu á þjónustusvæðinu,“ eins og það er orðað í fundargerð frá því í síðustu viku. „Jafnframt var horft til aukinna krafna um áfallaþol, áhættustýringu og net- og upplýsingaöryggi, auk verðlagsþróunar frá síðustu gjaldskrárbreytingum 1. janúar 2026.“
Í fundargerð segir einnig meðal annars:
- Rekstur vatnsveitu er í jafnvægi, en fram undan eru umtalsverðar framkvæmdir og gjaldtaka er þegar við hámark leyfilegra tekna samkvæmt viðeigandi leiðbeiningum og reiknilíkani stjórnvalda.
- Í rafveitu hafa tekjur ekki vaxið í samræmi við umfang dreifikerfisins. Þar þarf áfram að vinna að spennubreytingu eldri hluta kerfisins og ráðast í nýframkvæmdir.
- Rekstur hitaveitu er í góðu jafnvægi þrátt fyrir að fjárfestingar séu mjög þungar á næstu fimm árum, tæplega 4,3 milljarðar, meðal annars vegna virkjunar jarðvarma á Ytri-Haga og aðveitulagnar þaðan til Hjalteyrar. Gjaldskrá Reykjaveitu skal, samkvæmt samningi frá 2006 um lagningu veitunnar, fylgja verðlagsþróun.
- Tekjur fráveitu hafa um árabil ekki staðið undir eignagrunni og nauðsynlegum fjárfestingum. Fram undan eru umfangsmiklar framkvæmdir vegna endurnýjunar innviða, nýframkvæmda og aukinna krafna um hreinsun fráveituvatns. Gjaldskrá fráveitu hefur verið mjög hófstillt frá því að Norðurorka tók fráveituna yfir og breytti fyrirkomulagi gjaldtöku þannig að fráveitugjald reiknast eftir stærð fasteignar í fermetrum í stað hlutfalls af fasteignamati. Ef fyrra fyrirkomulagi hefði verið fylgt áfram væri gjaldskráin umtalvert hærri en nú er.

„Óheppilegt“ að fyrirtæki í eigu bæjarins fylgi ekki plani
Berglind Ósk Guðmundsdóttir bæjarstjóri Akureyrar segir mögulegt að ákvörðun stjórnar Norðurorku verði breytt, eins og fram kom að ofan. Hún sagði þetta í viðtali við RÚV. „Við hjá sveitarfélaginu ætlum okkur auðvitað að standa við gefin loforð um að takmarka allar gjaldskrárhækkanir við 2,5%. Þannig okkur finnst þetta bara frekar óheppilegt að fyrirtæki svona í stórri eigu sveitarfélagsins sé ekki að fara eftir þeirri línu sem við ætlum að setja okkur,“ sagði Berglind Ósk.
Tillaga um að gjaldskrá hitaveitu hækki um 5,5%, gjaldskrá rafveitu um 5% til viðskiptavina, gjaldskrá vatnsveitu um 2,5% og gjaldskrá fráveitu um 7% var samþykkt með þremur atkvæðum á fundi stjórnar Norðurorku sem fyrr segir. Hlynur Jóhannsson, Geir Kristinn Aðalsteinsson og Heimir Örn Árnason kusu með tillögunni. Sóley Björk Stefánsdóttir og Hilda Jana Gísladóttir kusu á móti.
Hilda Jana Gísladóttir, fulltrúi Samfylkingar í stjórn Norðurorku, lét bóka eftirfarandi:
Ég tel að gjaldskrárhækkanir Norðurorku gagnvart notendum nú eigi ekki að vera umfram 2,5%. Það samræmist áherslum sameiginlegs átaks stjórnvalda, sveitarfélaga og aðila vinnumarkaðarins til að ná tökum á verðbólgu og skapa forsendur fyrir lækkun vaxta. Norðurorka veitir nauðsynlega grunnþjónustu og mikilvægt er að fyrirtækið leggi sitt af mörkum með hóflegum gjaldskrárhækkunum. Það er jafnframt fyrirtækinu sjálfu til hagsbóta að verðbólga og vextir lækki, enda hefur það bein áhrif á rekstur fyrirtækisins. Jafnframt þurfa eigendur að styðja við þetta markmið með því að gefa svigrúm til að dreifa fjárfestingum yfir lengra tímabil og endurskoða forgangsröðun þeirra, án þess að skerða öryggi veitukerfa eða nauðsynlegt viðhald.
Geir Kristinn Aðalsteinsson, Heimir Örn Árnason og Hlynur Jóhannesson, létu bóka eftirfarandi:
Við áttum okkur á mikilvægi þess að gæta hófs við ákvarðanir um gjaldskrárhækkanir og að áhrif þeirra á heimili og fyrirtæki séu höfð að leiðarljósi. Við vinnslu málsins var gjaldskráin lækkuð umtalsvert frá þeim tillögum sem upphaflega voru lagðar fram og var gengið eins langt í þá átt og unnt var, að teknu tilliti til þeirra rekstrar- og fjárfestingarforsendna sem lagt var upp með.
Norðurorka stendur frammi fyrir umfangsmiklum verkefnum á komandi árum og eru framkvæmdir að áætluðu fjármagni um 7,8 milljarða króna á næstu fjórum árum á dagskrá. Til að standa undir þessum verkefnum, tryggja áframhaldandi uppbyggingu innviða og viðhalda traustum og sjálfbærum rekstri þarf gjaldskrá fyrirtækisins að endurspegla raunverulegar rekstrar- og fjárfestingarþarfir þess.
Að takmarka gjaldskrárhækkanir við 2,5% án þess að sýnt sé fram á hvernig mæta eigi þeim kostnaði og fjárfestingaþörf sem fram undan er væri óábyrg nálgun gagnvart rekstri fyrirtækisins og gæti grafið undan getu þess til að sinna lögbundnu hlutverki sínu og nauðsynlegri uppbyggingu innviða til framtíðar. Ábyrg fjármálastjórn felst í því að gæta hófs í gjaldskrárákvörðunum en jafnframt tryggja að fyrirtækið geti staðið við skuldbindingar sínar, ráðist í nauðsynlegar framkvæmdir og veitt viðskiptavinum sínum áreiðanlega þjónustu til framtíðar. Það er sú viðleitni sem liggur að baki þeim ákvörðunum sem nú hafa verið teknar.