Fara í efni
Fréttir

Félag um millilandaflug frá Akureyri – flogið til Bretlands, Danmerkur og Spánar – fyrsta flug 2. júní

Stofnað hefur verið félag um millilandaflug á Akureyri og er áætlað jómfrúarflug 2.  júní næstkomandi. Í upphafi verður flogið til Bretlands, Danmerkur og Spánar og sala hefst á næstu vikum. Þetta kemur fram í tilkynningu sem send var út í morgun.

Félagið hefur fengið nafnið Niceair sem vísar til norður Íslands – North Iceland Air – og mun sinna vaxandi markaði svæðisins fyrir bæði heimamenn og erlenda ferðamenn. 

Félagið hefur fest sér Airbus A319 flugvél með 150 sætum en þessi tegund flugvélar er langdræg og hentar vel fyrir aðstæður á Akureyri ásamt því að hafa gott fraktrými, segir í tilkynningunni.

Áætlunarflug allt árið

„Forsendur fyrir flugi til og frá Akureyri hafa breyst verulega frá því sem áður var en stofnun Niceair kemur í kjölfar tveggja ára rannsóknarvinnu í samvinnu við erlenda og innlenda aðila. Ætlun félagsins er að festa í sessi áætlunarflug allt árið á erlenda áfangastaði frá Akureyrarflugvelli. Þetta mun í senn bæta lífsskilyrði einstaklinga á svæðinu, bæta aðgengi erlendra ferðamanna að Norðurlandi, og síðast en ekki síst stóreykst samkeppnishæfni fyrirtækja á svæðinu,“ segir Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Niceair í tilkynningunni.

„Fyrst um sinn verður flugrekstrarleyfið í höndum evrópsks flugrekanda. Ætla má að um 20 störf muni skapast á Akureyri en áhafnir verða bæði innlendar og erlendar, og launakjör sambærileg þeim sem gerast á íslenskum vinnumarkaði. Þjálfun áhafna mun fara fram bæði á Íslandi og erlendis.“

Öflugir bakhjarlar

„Við erum vel fjármagnað félag með öfluga bakhjarla. Það er sérstaklega ánægjulegt hversu fjölbreytt breiðsíða fyrirtækja, einstaklinga og stofnana á Norðurlandi hefur flykkt sér að baki félaginu, en KEA, Höldur, Kaldbakur, Norlandair, Armar, Ferðaskrifstofa Akureyrar, Norðurböð, brugghúsið Kaldi, kælismiðjan Frost, Finnur ehf. og fleiri félög eru meðal hluthafa. Enginn hluthafa er áberandi stór og enginn er yfir 8%. Á næstu misserum verður almenningi og fyrirtækjum boðið að eignast hlutdeild í félaginu,“ segir Þorvaldur Lúðvík.

Í tilkynningunni segir ennfremur: „Áætlunarflug allt árið um kring mun þjóna farþegum bæði á Norðurlandi og Austurlandi sem hingað til hafa þurft að fara langan veg til Keflavíkur til að komast í millilandaflug. Flug Niceair til Akureyrar er líklegt til að styðja við heilsársþjónustu um allt land sem hefur lengi verið markmið ferðaþjónustunnar en rannsóknir frá Ferðamálastofu hafa sýnt fram á að 70% endurkomufarþega til Íslands vilja komast beint út á land.“

Jákvætt og stórt skref

„Við erum gríðarlega ánægð að fá okkar eigið flugfélag á Akureyrarflugvöll. Hér í norðrinu er ört vaxandi borgarsamfélag sem verður að hafa áætlunarflug á milli landa á helstu áfangastaði fyrir fólk og frakt. Það hefur verið sameiginlegt átak hjá mörgum hagaðilum hér fyrir norðan um langt skeið að byggja upp áfangastaðinn og þetta er afar jákvætt og stórt skref sem við sjáum hér stigið“, segir Hjördís Þórhallsdóttir, flugvallarstjóri Akureyrarflugvallar.

„Við sjáum fram á vöxt á næstu árum. Það er mikilvægt að geta gripið tækifæri til frekari vaxtar eftir því sem eftirspurn eykst. Við hlökkum til að taka höndum saman með Íslandsstofu, Markaðsstofu Norðurlands, Austurbrú og stjórnvöldum við að kynna Norður- og Austurland sem nýja áfangastaði á Íslandi,“ segir Þorvaldur Lúðvík.

Áfangastaðir verða kynntir á næstu vikum og mun sala hefjast strax í kjölfarið á heimasíðu félagsins, www.niceair.is. Bókunarvél Niceair verður tengd Dohop og öðrum erlendum bókunarvélum sem einfaldar farþegum félagsins að bóka sig beint á milli Akureyrar og áfangastaða erlendis um tengivelli félagsins í Evrópu, segir í tilkynningunni.

Millilandaflug um Akureyri mjög raunhæft