Fara í efni
Fréttir

Samdráttur í komum skemmtiferðaskipa

Skemmtiferðaskipið Sky Princess við Oddeyrarbryggju í júní 2023. Mynd: Haraldur Ingólfsson.

Á næsta ári stefnir í að komur skemmtiferðaskipa til Íslands verði um 27% færri en þær voru árið 2024. Hvað Akureyri verðar stefnir í um 30% samdrátt á sama tímabili, fækkun úr 201 skipakomu í 141. 

Reiknað er með 881 skipakomu til Íslands á árinu 2027 samkvæmt upplýsingum úr samræmda bókunarkerfinu DOKK. Á þessu ári er reiknað með að skipakomur verði samtals 1.043, sem er 14% samdráttur frá árinu 2024. Stöðug fækkun er á skipakomum til Akureyrar á milli ára á sama tímabili, úr 201 árið 2024 í 179 árið eftir, þá 153 á þessu ári og 141 á því næsta. Örlítil fjölgun er aftur í kortunum árið 2028.

Samantekt á komum skemmtiferðaskipa til Akureyrar, Grímseyjar og Hríseyjar, ásamt tekjum Hafnasamlags Norðurlands af þeim árin 2024-2028. Mynd: Hafnasamlag Norðurlands.

Í samantekt Sigurðar Jökuls Ólafssonar, framkvæmdastjóra Cruise Iceland, kemur fram að „vonarglæta“ sé í bókunarstöðu fyrir árið 2028. Fullyrt er að óstöðugleiki og ófyrirsjáanlegt rekstrarumhverfi skemmtiferðaskipa á Íslandi á árunum 2023 til 2025 sé nú að skila sér af fullum þunga í samdrætti á landsvísu. Alheimurinn greip hins vegar inn í á þessu ári, ef svo má að orði komast. Sólmyrkvinn í ágúst er sagður hafa gert það að verkum að samdrátturinn varð minni en ella. Staðan hefði versnað enn meira ef ekki væri fyrir sólmyrkvann.

Rúmlega 400 skemmtiferðaskip sigla um heimsins höf og eru slíkar siglingar skipulagðar nokkur ár fram í tímann. Siglingar eru ákveðnar þrjú til fjögur ár fram í tímann, hafnir, afþreying og ferðir bókaðar og að því búnu eru ferðirnar markaðssettar til neytenda með um tveggja ára fyrirvara.

Myndrit úr samantekt Cruise Iceland sem sýnir komur skemmtiferðaskipa til Íslands 2024-2028, rauntölur og bókanir.

Lækkun innviðagjaldsins hefur jákvæð áhrif

Innviðagjald sem lagt var á frá og með 1. janúar 2025 var upphaflega 2.500 krónur á hvern farþega um borð í skemmtiferðaskipi í millilandasiglingum og reiknast fyrir hvern byrjaðan sólarhring á meðan skip er í höfn hér á landi eða annars staðar á tollsvæði Íslands. Gjaldið var lækkað í 1.600 krónur í lok árs 2025. Áður var lagður á svokallaður gistináttaskattur, eitt þúsund krónur á hvern farþega á nótt.

Fram kemur í samantekt Cruise Iceland að bókunarstaða fyrir árið 2028 hafi tekið vel við sér þegar innviðagjaldið var lækkað aftur og hafi það verið farsælt skref í átt að stöðugra rekstrarumhverfi þessa geira hér við land, sem og til hagsbóta fyrir þau fyrirtæki, hafnir og einstaklinga sem þjónusta skemmtiferðaskipin víða um land. 

Eins og staðan er núna er bókuð 881 skipakoma árið 2028, en miðað við fyrri reynslu má búast við því að bókunum fjölgi um 100, að því er fram kemur í samantektinni.