Fara í efni
Fréttir

Endurbættar sýningar í Húsi Hákarla-Jörundar

Hús Hákarla-Jörundar í Hrísey. Ljósmynd: María Helena Tryggvadóttir.

Frá því í sumar hefur verið unnið að miklum breytingum á Húsi Hákarla-Jörundar í Hrísey. Í húsinu má finna nokkrar örsýningar um sögu hákarlaveiða, mannlífs og atvinnusögu Hríseyjar. Frá þessu segir á vef Akureyrarbæjar.

„Allar sýningarnar í húsinu voru endurgerðar og bætt við fjölbreyttum fróðleiksmolum, auk þess sem sýningarlýsing hefur verið endurnýjuð og bætt. Að utan hefur húsið verið málað og búið er að setja upp nýtt skilti sem segir sögu hússins í máli og myndum,“ segir á vefnum.

„Sigríður Örvarsdóttir sagnfræðingur og hönnuður sá um endurgerð sýninganna með aðstoð bæði Lindu Maríu Ásgeirsdóttur fulltrúa Ferðamálafélags Hríseyjar og fleiri heimamanna. Skiltið er hannað af þeim Sigríði Örvarsdóttur og Hönnu Rósu Sveinsdóttur sérfræðingi hjá Minjasafninu á Akureyri, með styrk frá Brunabótafélagi Íslands.“

Hús Hákarla-Jörundar er opið á sumrin frá 1. júní til 30. ágúst og fyrir hópa þess utan. 

Heimasíða Hríseyjar