Strætóferðir milli Hofs og Hríseyjarferjunnar
Nú er hægt að ferðast með almenningssamgöngum frá Akureyri og áfram til Hríseyjar með tengingu milli strætóleiðar 78 og Hríseyjarferjunnar. Þetta kemur fram á vef Akureyrarbæjar og „auðveldar bæði íbúum og gestum að komast til og frá eyjunni án þess að vera á eigin bíl,“ eins og segir þar.
Það er strætisvagninn sem ekur á milli Akureyrar og Siglufjarðar sem sinnir þessu hlutverki.
Sem stendur fer strætó sex daga í viku á milli Akureyrar og Árskógssands, þar sem ferjan leggst að bryggju. Hann ekur þrisvar á dag alla virka daga og einu sinni á sunnudögum. „Tengingarnar henta vel fyrir ferðamenn sem vilja heimsækja Hrísey og njóta þess sem eyjan hefur upp á að bjóða,“ segir á vef Akureyrarbæjar. „Hrísey er einstakur áfangastaður með fallegri náttúru, fjölbreyttu fuglalífi og rólegu andrúmslofti. Það er vel þess virði að kíkja í heimsókn og njóta eyjunnar.“
- Strætó fer frá Hofi alla virka daga kl. 8:22, 12:22 og 16:42. Á sunnudögum ekur hann einnig frá Hofi kl. 16:42. Gert er ráð fyrir að strætóferðin taki hálftíma og ferjan siglir út í eyju rúmum hálftíma eftir að komið er á Árskógssand.
- Þessa sömu sex daga vikunnar geta þeir farþegar sem sigla með ferjunni úr Hrísey kl. 15:00 tekið strætó á Árskógssandi og verið komnir að menningarhúsinu Hofi á Akureyri kl. 16:04 skv. töflunni hér að neðan.
Unnið er að frekari útfærslum á tengingum almenningssamgangna með það að markmiði að þær nýtist íbúum Hríseyjar enn betur, að því er fram kemur á vef bæjarins.

Mynd af vef Akureyrarbæjar