Fara í efni
Fréttir

Vilja löggæsludróna í Grímsey og Hrísey

Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra, Páley Borgþórsdóttir, hefur fyrir hönd embættisins leitað til bæjarráðs Akureyrarbæjar með beiðni um aðkomu að uppsetningu löggæsludróna í Grímsey og Hrísey. Bæjarráð fól bæjarstjóra að vinna að málinu. 

Í erindi lögreglustjórans kemur fram að embættið hafi í samstarfi við ákveðnar sveitarstjórnir komið upp neti af fjarstýrðum löggæsludrónum sem komið er varanlega fyrir í hýsingum (e. Dock). Bæjarráð Akureyrar samþykkti aðkomu að því tilraunaverkefni haustið 2025. Gengið hefur verið frá uppsetningum á tveimur löggæsludrónum á Akureyri. Lögreglustjóri segir góða reynslu vera komna á notkun drónanna sem fyrsta viðbragðs.

Fram kemur að áætlaður kostnaður við að bæta við drónum í Grímsey og Hrísey sé um 3,7 milljónir króna á hvorum stað. Sá kostnaður samanstandi af kaupum á drónunum, leyfisgjöldum fyrir hugbúnaðinum og 4g sendingabúnaði. Utan þeirrar tölu er vinna við rafmagn og smíði festinga. Kostnaður við þjálfun, mönnun, árlegt leyfisgjald og rekstur miðlægs netþjóns fellur á lögregluembættið.

Vilja dróna frekar en fastar myndavélar

„Akureyrarbær hefur í gegnum árin komið myndarlega að uppbyggingu löggæslumyndavéla í miðbæ Akureyrar og víðar og verið fordæmi fyrir önnur sveitarfélög um samstarf með lögreglu um uppsetningu og reksturs slíks búnaðar. Er það mat lögreglu að sá búnaður hafi frá upphafi nýst mjög vel í því skyni að viðhalda öruggu samfélagi,“ segir meðal annars í erindi lögreglustjórans. Embættið telji að löggæsludrónar sem fjarstýrt sé frá lögreglustöðvum séu gagnleg viðbót við löggæslumyndavélakerfið og leggur til við Akureyrarbæ að það nái einnig til Grímseyjar og Hríseyjar, en horfið verði frá fyrri hugmyndum um að koma upp föstum löggæslumyndavélum í eyjunum.

„Embættið er þegar með tvo uppsetta dróna á Akureyri og telur að slík tæki gætu nýst afar vel á jafn einangruðum stöðum og byggðir í Hrísey og Grímsey eru þar sem löggæsla er ekki á staðnum árið um kring,“ segir ennfremur í erindi lögreglustjórans.