Vegagerðin vill fella Lambhagaveg af skrá
Vegagerðin hefur tilkynnt Akureyrarbæ að fyrirhugað sé að fella Lambhagaveg í Hrísey af vegaskrá og hætti þar með að sinna viðhaldi hans. Umhverfis- og mannvirkjaráð tók erindið til umfjöllunar á fundi sínum nýlega og samþykkti að vísa því til bæjarráðs.
Lambhagavegur í Hrísey er ríflega eins kílómetra langur vegur, sem liggur frá þorpinu upp að Kríunesi. Vegurinn hefur verið hluti af vegaskrá Vegagerðarinnar sem héraðsvegur og ber Vegagerðin ábyrgð á rekstri og viðhaldi hans.
- Samkvæmt skilgreiningu Vegagerðarinnar eru héraðsvegir þeir vegir sem liggja að býlum, atvinnustarfsemi, kirkjustöðum, opinberum skólum og öðrum opinberum stofnunum utan þéttbýlis sem ákveðnir eru á staðfestu skipulagi og taldir upp í vegaskrá.
Umhverfis- og mannvirkjaráð bendir á að Landnámsegg séu ennþá með starfsemi í Kríunesi og hafi öll tilskilin leyfi frá MAST. Ráðið ítrekar að Vegagerðin haldi veginum á vegaskrá og sinni bæði sumar-og vetrarviðhaldi. Raunar hafi vetrarviðhaldi á veginum ekki verið sinnt undanfarin ár og úr því þurfi Vegagerðin að bæta.
Eins og áður segir vísaði ráðið málinu til afgreiðslu bæjarráðs.