Akureyrarbær innleiðir rafrænt losunarbókhald
Bæjarráð Akureyrar hefur samþykkt að taka þátt í verkefni að nafni Kolka, sem er rafrænt losunarbókhald fyrir rekstur sveitarfélaga.
Markmiðið með Kolku er að innleiða sjálfvirka lausn fyrir losunarbókhald frá reskstri allra sveitarfélaga innan Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi eystra (SSNE) og er verkefnið hluti af gildandi sóknaráætlun og loftslagsstefnu landshlutans, samþykkt sem áhersluverkefni af stjórn SSNE til eins árs.
Fram kemur í erindi Albertínu Friðbjargar Elíasdóttur, framkvæmdastjóra SSNE, til Akureyrarbæjar að uppsetning verkefnisins muni spara sveitarfélögunum umfangsmikla vinnu við flokkun og útreikninga á kolefnisspori frá rekstri. Verkefnið er fjármagnað af Sóknaráætlun Norðurlands til eins árs og því ekki gert ráð fyrir beinum kostnaði fyrir sveitarfélögin á því tímabili. Áður en því tímabili lýkur er ætlunin að meta árangurinn af verkefninu og í kjölfarið að taka ákvörðun um framhaldið í samráði við sveitarfélögin.
Ætlað að auka sjálfvirkni í skýrslugerð
Í minnisblaði um verkefnið sem fylgdi erindi SSNE til Akureyrarbæjar er farið yfir tilgang verkefnisins í eftirfarandi atriðum:
- Spara sveitarfélögunum umfangsmikla vinnu við flokkun og útreikninga á kolefnisspori frá rekstri.
- Auka sjálfvirkni í skýrslugerð og spara vinnu við að safna saman upplýsingum fyrir sjálfbærniskýrslugerð og grænt bókhald.
- Einfalda skil sveitarfélaga til Umhverfisstofnunar á árangri þeirra í loftslagsmálum.
- Auka gæði og gagnsæi í loftslagsaðgerðum sveitarfélaga.
- Gera reglubundna eftirfylgni mögulega og auka aðhald í rekstri.
- Auðvelda sveitarfélögum eftirfylgni með losunarmarkmiðum.
- Gera sveitarfélögum kleift að forgangsraða loftslagsaðgerðum eftir áhrifum.
- Tryggja samanburðahæfni milli sveitarfélaga og auka samkeppni í loftslagsverkefnum sem draga úr losun.
- Auðvelda sveitarfélögum að sækja um umhverfisstyrki.
Þetta verkefni kom fyrst fram við mótun Sóknaráætlunar Norðurlands fyrir árin 2025-2029 og varð síðar hluti af aðgerðum í nýlega samþykktri stefnu, LOFORÐ - Loftslagsstefna Norðurlands eystra. SSNE fundaði síðastliðinn vetur með tveimur aðilum sem selja lausnir fyrir rafrænt losunarbókhald og ákvað í kjölfarið að hefja samstarf við Laufið og Advania um lausn sem heitir Kolka. Sú lausn býður upp á alla þá þætti sem sveitarfélögin þurfa fyrir sjálfvirkt og skilvirkt losunarbókhald frá rekstri, segir meðal annars í kynningu á verkefninu.