Hlyntré við veggi
TRÉ VIKUNNAR - 169
Pistill í röðinni Tré vikunnar birtist vikulega á vef Skógræktarfélags Eyfirðinga, alla miðvikudaga. Akureyri.net birtir brot úr hverjum pistli til að vekja athygli á skrifunum og hvetur fólk til að lesa meira á vefsíðu félagsins.
_ _ _
Á Íslandi eru ræktuð allskonar tré. Allar sömu tegundirnar eru einnig ræktuð í útlöndum. Sum tré eru frægari en önnur. Í þessum pistli segjum við frá tveimur trjám af tegund sem heitir garðahlynur, Acer pseudoplatanus. Bæði trén standa við gamla veggi. Annar hlynurinn er í Norðymbralandi í Englandi, hinn á Oddeyrinni á Akureyri.

Forsaga
Rómarkeisari hafði gert víðreist um heimsveldið sem hann stjórnaði. Það var stærsta keisaraveldi sem nokkurn tímann hafði verið til þegar hér var komið við sögu. Árið 122 var keisarinn kominn til Bretlandseyja í embættiserindum og alla leið að nyrstu byggðum keisaradæmisins. Þar fyrir norðan voru svo þéttir skógar að hvorki Rómverjar né fæstir heimamenn hættu sér inn í þá enda bjuggu í þeim villimenn sem kölluðust Piktar. Þessir íbúar norðurhluta þess svæðis, sem nú kallast Bretland, sköpuðu ýmiss vandamál fyrir heimsveldið og áttu það til að fara ránshendi um lendur Rómar. Auðvitað var ekki hægt að líða slíkt af hendi óskrifandi villimanna sem ekki kunnu latínu. Því stóð keisarinn, sem hét Publius Aelius Hadrianus (76-138), fyrir því að hafist var handa við að reisa múr sem við hann var kenndur og kallaðist Vallum Hadriani eða Hadríanusarveggurinn. Hann var reistur þvert yfir Stóra-Bretland, samtals 117,5 km langa leið, á því svæði sem nú kallast Norðymbraland. Það er sunnan við núverandi landamæri Englands og Skotlands. Segja má að veggnum hafi verið ætlað að mynda norðurlandamæri Rómaveldis á þessum slóðum og vernda keisaraveldið fyrir árásum Pikta úr norðri en jafnframt að auðvelda stjórn á viðskiptum við þá.
Svo leið og beið og veggurinn hætti að gegna hlutverki sínu. Menn Hadríanusar höfðu vandað vel til verka og þótt veggurinn hafi ekkert opinbert hlutverk lengur stendur hann enn að hluta til.
Þjóðflokkur Pikta, með sína eigin tungu og bláu andlitsmálningu, er löngu horfinn í þjóðahafið þar sem hann blandaðist aðkomuþjóðum. Erfðir þessa fólks má enn finna meðal núverandi Skota. Tungan lét undan fyrir gelísku sem barst frá Írlandi og er algerlega horfin.

Garðahlynur í Norðymbralandi
Við værum varla að rifja upp þessa sögu nema vegna þess að um einu og hálfu árþúsundi síðar gerðist það að upp við vegginn óx stæðilegur garðahlynur, Acer pseudoplatanus. Talið er að þáverandi landeigandi að nafni John Clayton (1792–1890) hafi plantað trénu á sama tíma og ákveðið var að friða það sem enn stóð efir af vegnum. Nú er frá því að segja að öllum skógum á svæðinu hafði verið eytt og engin önnur tré voru þar í nágrenninu svo hlynurinn varð frægur og naut að vonum mikillar aðdáunar íbúa í norðurhluta Englands. Hann hlaut sérnafnið Sycamore Gap Tree.
Um einni öld síðar reis frægð þessa staka hlyntrés hvað hæst því árið 1991 skipaði það stóran sess í mynd um þjófaprinsinn Hróa hött (Robin Hood: Prince of Thieves) þar sem sjálfur Kevin Costner fór með hlutverk Hróa hattar.
Tréð var valið tré ársins í Englandi árið 2016.



Tvær myndir af vef Wikipediu af trénu við vegginn. Þá fyrri á Gordon Leggett / Wikimedia Commons, en þá seinni á Robin van Mourik.
Skemmdarfýsn
28. september árið 2023 bárust þau tíðindi að tréð, sem þá var um 120 ára gamalt, hafði verið fellt. Lögreglan í Norðymbralandi lýsti því strax yfir að um skemmdarverk (an act of vandalism) hefði verið að ræða og hóf viðamikla rannsókn. Síðar kom í ljós að þarna höfðu tveir menn á fertugsaldri verið að verki án sýnilegrar ástæðu. Þeir voru kærðir fyrir verknaðinn og 15. júlí 2025 voru þeir báðir dæmdir í fjögra ára og þriggja mánuða fangelsi fyrir skemmdarverkið (Wikipedia 2025). Hér segir Sarah Dodd lítillega frá réttarhöldunum í hlaðvarpsþætti. Hún rekur lögmannsstofuna Tree Low sem er eina lögmannsstofa Bretlandseyja sem sérhæfð er í málum er tengjast trjám. Dodd segir að meðal sönnunargagna hafi verið myndband af verknaðinum og staðfesting á að bæði sími og bíll annars sakbornings hafi verið á staðnum þegar tréð var fellt. Hvorugur sakborninga kannaðist neitt við neitt en kenndu hvor öðrum um. Það dugði ekki sem vörn í málinu.
Sigurður Arnarson er í stjórn Skógræktarfélags Eyfirðinga.
Smellið hér til að sjá allan pistilinn: Hlyntré við veggi
Randahlynur og kynusli
Silkitoppa
Tré ölrakóngsins. Seinni hluti: Vist og notkun
Lárheggur. Sígrænn, blómstrandi krúttrunni