Fara í efni
Tré vikunnar

Samanburður broddhlyns og garðahlyns

TRÉ VIKUNNAR - 186

Pistill í röðinni Tré vikunnar birtist vikulega á vef Skógræktarfélags Eyfirðinga, alla miðvikudaga. Akureyri.net birtir brot úr hverjum pistli til að vekja athygli á skrifunum og hvetur fólk til að lesa meira á vefsíðu félagsins.
_ _ _

Björgvin Steindórsson var forstöðumaður Lystigarðs Akureyrar frá 1997 og þar til hann lést eftir erfið veikindi aðeins 61 árs að aldri árið 2016. Björgvin var alltaf í vinnunni og arfleifð hans lifir í garðinum. Björgvin tók fjölda mynda af trjám og allskonar gróðri á ferðalögum sínum heima og í útlöndum, í Lystigarðinum og í eigin garði. Fyrir andlát sitt merkti hann flestar myndirnar og flokkaði. Ekkja hans, Anna Rebekka Hermannsdóttir, hefur veitt okkur aðgang að þessu stóra myndasafni sem við lítum á sem mikinn fjársjóð. Í safninu er einnig að finna stuttar lýsingar á mörgum ættkvíslum og tegundum sem Björgvin hafði skráð hjá sér.

Þessi pistill byggir að mestu á einu slíku skjali. Þar ber hann saman þær tvær tegundir hlyntrjáa sem mest eru ræktaðar á Íslandi. Aðrar tegundir ættkvíslarinnar sem hér eru ræktaðar teljast frekar til runna en trjáa þótt það kunni að breytast í framtíðinni.

Okkur er sérstök ánægja af að birta þessar athugasemdir til að auðvelda almenningi að bera tegundirnar saman. Við höfum bætt við smávægilegum upplýsingum án þess að við hirðum um að geta hvað sé frá honum komið og hvað frá okkur. Meirihlutinn er þó frá honum kominn. Hitt er bara til uppfyllingar.

Mörg yrki eru ræktuð af broddhlyni. Hér eru það 'Crimson King' í haustlitum og 'Drummondii' með sín tvílitu blöð. Hvorug myndin er tekin á Íslandi. Myndir: Björgvin Steindórsson.

 

Tegundirnar

Tegundirnar tvær sem um ræðir eru garðahlynur, Acer pseudoplatanus L., og broddhlynur, A. platanoides L. Tegundirnar eiga sitthvað sameiginlegt. Fyrir það fyrsta má nefna að allar hlyntegundir hafa gagnstæð blöð. Blöðin á báðum tegundum minna á lauf platanviða, Platanus, og bera báðar fræðiheiti sem vísa í það. Pseudoplatanus er sett saman úr orðunum pseudo og platanus. Hið fyrra merkir gervi, falskur, plat eða eitthvað slíkt. Því merkir fræðiheitið gerviplatanviður, platplatan, eða eitthvað álíka.

Færri yrki eru ræktuð af garðahlyni en þau eru þó til. Hér má sjá 'Leopoldii' í Árósum 28.6. 2007. Mynd: Björgvin Steindórsson.
Færri yrki eru ræktuð af garðahlyni en þau eru þó til. Hér má sjá 'Leopoldii' í Árósum 28.6. 2007. Mynd: Björgvin Steindórsson.

Platanoides vísar einnig í platanviði. Viðskeytið er notað yfir eitthvað sem er líkt. Fræðiheitið getur því merkt platanlíki.

Annað sem tegundirnar eiga sameiginlegt er að það var hinn sænski grasafræðingur Carl von Linné (1707 – 1778) sem lýsti tegundunum fyrst af grasafræðilegri nákvæmni og gaf þeim nöfn. Þess vegna er bókstafinn L. að finna á eftir fræðiheitunum. Nöfnin og lýsingarnar birti hann í tímamótaverki sínu Species Plantarum árið 1753. Í sama riti nefndi hann sjö aðrar hlyntegundir á nafn en kenndi enga þeirra við platanvið. Ef til vill sýnir það okkur hversu líkar þessar tegundir geta verið.

Austurlandaplatan, Platanus orientalis, er með lík laufblöð og margar hlyntegundir en aldinin eru allt öðruvísi. Ef hlynfræ myndast koma þau alltaf upp um ættkvíslina. Myndin var tekin í konunglega grasagarðinum í Edinborg árið 2019. Mynd: Sig.A.
Austurlandaplatan, Platanus orientalis, er með lík laufblöð og margar hlyntegundir en aldinin eru allt öðruvísi. Ef hlynfræ myndast koma þau alltaf upp um ættkvíslina. Myndin var tekin í konunglega grasagarðinum í Edinborg árið 2019. Mynd: Sig.A.

Enn er ónefnt að tegundirnar eru báðar evrópskar. Garðahlynur vex í miðhluta álfunnar og oft til fjalla. Broddhlynur vex á svipuðum slóðum en einnig norðar. Hann er miklu algengari á Norðurlöndum en þar telst garðahlynur innfluttur slæðingur.

Sigurður Arnarson er í stjórn Skógræktarfélags Eyfirðinga.

Smellið hér til að sjá allan pistilinn: Samanburður broddhlyns og garðahlyns

Tegundir birkiættkvíslarinnar

Sigurður Arnarson skrifar
07. október 2026 | kl. 14:30

Nánasta fjölskylda birkis

Sigurður Arnarson skrifar
30. september 2026 | kl. 12:30

Notkun og mikilvægi hafþyrnis

Sigurður Arnarson skrifar
23. september 2026 | kl. 11:20

Ættkvísl hlyntrjáa

Sigurður Arnarson skrifar
16. september 2026 | kl. 10:30

Ilmbirki heima og erlendis

Sigurður Arnarson skrifar
09. september 2026 | kl. 09:00

Hvenær teljast tré dauð? Lífið finnur sér leið

Sigurður Arnarson skrifar
02. september 2026 | kl. 09:20