Fara í efni
Gervigreind - pistlar

Fyrirlestur Guðmundar um Óla G. á Listasafninu

Óli G. Jóhannsson og Guðmundur Ármann.

Þriðjudagsfyrirlestur dagsins á Listasafninu heldur Guðmundur Ármann Sigurjónsson, myndlistarmaður. Yfirskriftin er Óli G. – rómantíski expressíónistinn. Guðmundur fjallar þá um myndlist Óla G. Jóhannssonar og gerir tilraun til að varpa ljósi á hversu mikilvægt það er fyrir listamanninn að samfélagið sé tilbúið að taka á móti honum og listinni. Fyrirlesturinn hefst kl. 16.15, og aðgangur er ókeypis.

Fyrirlesturinn er haldinn í tengslum við yfirlitssýningu á verkum Óla G., Lífsins gangur, sem opnuð var á dögum í Listasafninu. Hann er þekktur fyrir greinilegan abstrakt expressjónískan stíl, þar sem kraftar náttúrunnar – sólin, vindurinn og hafið – flæða í gegnum verkin. 

 

Yfirlitssýning verka Óla G. var opnuð nýverið á Listasafninu og mun standa framyfir áramót. Mynd: listak

Guðmundur Ármann. Mynd: Rakel Hinriksdóttir

Guðmundur Ármann hefur starfað sem myndlistarmaður síðan hann lauk háskólanámi frá listaháskólanum Valand í Gautaborg í Svíþjóð 1972. Hann hefur haldið yfir 52 einkasýningar og tekið þátt í fjölda alþjóðlegra samsýninga. Hann hóf kennsluferil sinn sem aðstoðarkennari í grafíkdeild Valand listaháskólans en lauk honum vorið 2014 eftir að hafa kennt við listnámsbraut Verkmenntaskólans á Akureyri í 14 ár. Árið 2012 lauk Guðmundur meistaranámi við Háskólann á Akureyri í kennslugreinum myndlistar og fjallaði lokaritgerðin um sjónmenningu og listnámskennslu við framhaldsskóla í Svíþjóð og á Íslandi.

Þriðjudagsfyrirlestrarnir eru samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Verkmenntaskólans á Akureyri, Myndlistarfélagsins og Gilfélagsins.

Magnús Smári fjallar um gervigreind á mannamáli

Valur Sæmundsson skrifar
03. febrúar 2026 | kl. 10:00

Hárkolluvillan: Af Tyrklandsferðum og gervigreind

Magnús Smári Smárason skrifar
28. janúar 2026 | kl. 10:00

Ekki „gervigreind“ heldur upplýsingaverksmiðjur

Magnús Smári Smárason skrifar
12. ágúst 2025 | kl. 14:30

Með tæknina mér við hlið: Hlutverk gervigreindar í skólastarfi

Ástrós Guðmundsdóttir skrifar
07. janúar 2025 | kl. 17:30

Aðventa

Magnús Smári Smárason skrifar
10. desember 2024 | kl. 16:16

Magnús verkefnastjóri í gervigreind við HA

Skapti Hallgrímsson skrifar
03. desember 2024 | kl. 15:40