Fara í efni
Gervigreind - pistlar

Frönsk kvikmyndahátíð hefst á morgun

Frönsk kvikmyndahátíð hefst á Akureyri á morgun, þriðjudag, og stendur til sunnudags. Fimm myndir eru á dagskránni, hver sýnd einu sinni, og verða sýningar í Sambíóunum, á Amtsbókasafninu og í Listasafninu.

Enginn aðgangseyrir er á hátíðina en fyrir sýningar í Sambíóunum þarf að skrá sig.

Franska kvikmyndahátíðin er haldin í samstarfi við Bíó Paradís og Sambíóin og skipulögð af sendiráði Frakklands á Íslandi, Alliance Francaise de Reykjavík, Institut Français og Akureyrarbæ.


ÞRIÐJUDAG 10. FEBRÚAR

  • La Femme la plus riche du mondeRíkasta kona í heimi
    Sambíóin. UPPSELT ER Á SÝNINGUNA.

„Innblásin af hneykslismáli L’Oréal-arftakans, fjallar myndin um snyrtivörudrottninginuna Marianne Farrère (Isabelle Huppert) sem hleypir heillandi ljósmyndara inn í líf sitt. Dásamleg vinátta tekur háhælaðan svikadans, þar sem jafnvel ríkasta kona heims getur misst jafnvægið,“ segir í kynningu.  

Myndin er eftir Thierry Klifa. Sjá stiklu úr myndinni hér.


MIÐVIKUDAG 11. FEBRÚAR

  • L'Inconnu de la Grande ArcheBoginn mikli
    Sambíóin kl. 17.00. Franskt tal og íslenskur texti.

Ókeypis inn en nauðsynlegt að skrá sig hér.

„Hér er á ferðinni saga um arkitekt sem barðist gegn kerfinu til að koma sýn sinni í framkvæmd á stórvirki rétt utan við París. Ómissandi drama með dönsku stórleikurunum Claes Bang og Sidse Babett Knudsen og kanadíska leikstjóra/leikaranum Xavier Dolan í aðalhlutverkum,“ segir í kynningu frá hátíðinni.

Myndin er eftir Stéphane Demoustier. Sjá stiklu úr myndinni hér.


FIMMTUDAG 12. FEBRÚAR

  • La Haine  – Hatrið
    Sambíóin kl 17.00. Franskt tal og enskur texti

Ókeypis inn en nauðsynlegt að skrá sig hér.

„Spennuþrunginn sólarhringur í lífi þriggja ungra manna í frönsku úthverfunum daginn eftir óeirðir,“ segir í kynningu. Myndin er eftir Mathieu Kassovitz. – Sjá stiklu úr myndinni hér.


LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR

  • Maya, donne-moi un titre Maya, gefðu mér titil
    Amtsbókasafnið á Akureyri kl. 13.00. Fransk tal og íslenskur texti.

„Maya og pabbi hennar, Michel Gondry, búa í tveimur ólíkum löndum. Á hverju kvöldi spyr hann hana: „Maya, gefðu mér titil.“ Svar hennar er grunnur að mörgum stuttum hreyfimyndum þar sem Maya er hetjan. Niðurstaðan er ljóðræn og skemmtileg saga sem býður áhorfendum á að dreyma og nýta ímyndunaraflið,“ segir í kynningu frá hátíðinni.

Myndin er eftir Michel Gondry. – Sjá stiklu úr myndinni hér.


SUNNUDAGUR 15. FEBRÚAR

  • L’Histoire de Souleymane – Saga Souleymane
    Listasafnið á Akureyri kl. 17.00. Franskt tal og enskur texti.

„Matar­sendingahjólreiðamaður í París og hælisleitandi að nafni Souleymane hefur tvo daga til að undirbúa frásögn sína fyrir úrslita­viðtal sem ræður því hvort hann fær löglega búsetu í Frakklandi. Saga Souleymane var val menntaskólanema á frönsku Kvikmyndahátíðinni í ár.“

Myndin er eftir Boris Lojkine. – Sjá stiklu úr myndinni hér.

Magnús Smári fjallar um gervigreind á mannamáli

Valur Sæmundsson skrifar
03. febrúar 2026 | kl. 10:00

Hárkolluvillan: Af Tyrklandsferðum og gervigreind

Magnús Smári Smárason skrifar
28. janúar 2026 | kl. 10:00

Ekki „gervigreind“ heldur upplýsingaverksmiðjur

Magnús Smári Smárason skrifar
12. ágúst 2025 | kl. 14:30

Með tæknina mér við hlið: Hlutverk gervigreindar í skólastarfi

Ástrós Guðmundsdóttir skrifar
07. janúar 2025 | kl. 17:30

Aðventa

Magnús Smári Smárason skrifar
10. desember 2024 | kl. 16:16

Magnús verkefnastjóri í gervigreind við HA

Skapti Hallgrímsson skrifar
03. desember 2024 | kl. 15:40