Fara í efni
Gervigreind - pistlar

Sköpun bernskunnar 2026 á Listasafninu

Sköpun bernskunnar 2026. Mynd: listak

Sýningin Sköpun bernskunnar hefur árlega verið sett upp í Listasafninu á Akureyri frá 2015. Nú er komið að því að opna sýningu ársins 2026, en opnunin fer fram laugardaginn 28. febrúar kl. 15.00 í Ketilhúsi. Markmið sýningarinnar er að efla safnfræðslu og gera sýnilegt og örva skapandi starf barna á aldrinum fimm til sextán ára. Þátttakendur hverju sinni eru skólabörn og starfandi myndlistarmenn ásamt Minjasafninu á Akureyri / Leikfangahúsinu, segir í fréttatilkynningu frá Listasafninu.

Í ár var myndlistarkonunni Sunnu Svavarsdóttur boðin þátttaka í verkefninu. Í verkum sínum opnar Sunna á samtal um hvernig við rötum í gegnum veröldina með skynfærum okkar. Hún beinir athyglinni að upplifun á ákveðnum augnablikum sem eru að mestu skynjun snertingar og lyktar. Forvitnin við að finna leiðir til að lengja þessi augnablik eru oftast upphafspunktur verka hennar.

Skólarnir sem taka þátt að þessu sinni eru leikskólinn Tröllaborgir og grunnskólarnir Brekkuskóli, Glerárskóli, Naustaskóli og Oddeyrarskóli. Í vetur komu skólabörnin í Listasafnið og unnu verk sín fyrir sýninguna undir handleiðslu listamannsins. Þar fengu þau tækifæri til að kynnast Sunnu og skapa eigin verk, innblásin af verkum hennar.

Sýningarstjóri er Heiða Björk Vilhjálmsdóttir

Magnús Smári fjallar um gervigreind á mannamáli

Valur Sæmundsson skrifar
03. febrúar 2026 | kl. 10:00

Hárkolluvillan: Af Tyrklandsferðum og gervigreind

Magnús Smári Smárason skrifar
28. janúar 2026 | kl. 10:00

Ekki „gervigreind“ heldur upplýsingaverksmiðjur

Magnús Smári Smárason skrifar
12. ágúst 2025 | kl. 14:30

Með tæknina mér við hlið: Hlutverk gervigreindar í skólastarfi

Ástrós Guðmundsdóttir skrifar
07. janúar 2025 | kl. 17:30

Aðventa

Magnús Smári Smárason skrifar
10. desember 2024 | kl. 16:16

Magnús verkefnastjóri í gervigreind við HA

Skapti Hallgrímsson skrifar
03. desember 2024 | kl. 15:40