Fara í efni
Ferðafélag Akureyrar

KA vann Þór, bæði enn í mikilli hættu – MYNDIR

Þórsarinn Einar Freyr Halldórsson og Hans Viktor Guðmundsson, fyrirliði KA, stíga dans í baráttu um boltann á laugardagskvöldið. Jeppe Pedersen lengst til hægri. Mynd: Skapti Hallgrímsson

KA sigraði Þór 3:0 á heimavelli á laugardagskvöldið í þriðja og síðasta bæjarslag ársins í Bestu deildinni, efstu deild Íslandsmótsins í knattspyrnu. Liðin eru bæði í harðri fallbaráttu en staða KA vænkaðist vitaskuld við að þrjú stig bættust í sarpinn; Akureyrarfélögin höfðu sætaskipti, KA fór upp í þriðja neðsta sæti en Þór niður í það næst neðsta, efra fallsætið. Tvö neðstu falla.

  • Ármann Hinrik og Skapti Hallgrímsson voru vopnaðir myndavélum á leiknum og meðfylgjandi eru 159 mynda syrpa frá þeim.

Tvær umferðir af fimm í keppni neðri sex liðanna eru að baki og þrjár eftir. Spennan er mikil en nú verður gert hlé á mótinu vegna landsleikjatarnar; keppni hefst ekki á ný fyrr en eftir tæpar þrjár vikur, laugardaginn 10. október. KA mætir þá Stjörnunni á útivelli en Þór tekur á móti ÍBV.

Valur og Stjarnan eru ekki í fallhættu, hafa bæði 31 stig. FH hefur verið á góðu skriði undanfarið og er komið með 27 stig, KA er með 23, Þór 21 og ÍBV 19.

  • Umfjöllun akureyri.net um leik Akureyrarliðanna á laugardagskvöldið:

KA vann bæjarslaginn og sendi Þór í fallsæti

Sigurinn gefur okkur sjálfstraust og meiri ró

Sært dýr er helvíti hættulegt dýr

Við fengum fáránlega góðan stuðning

Sparifataganga FFA á Súlur – MYNDIR

Skapti Hallgrímsson skrifar
17. ágúst 2026 | kl. 09:00

FFA 90 ára: Súluferð í sparifötunum

Valur Sæmundsson skrifar
02. ágúst 2026 | kl. 17:00

Afmælisferð FFA í Dreka – MYNDIR

Valur Sæmundsson skrifar
28. júlí 2026 | kl. 10:15

Forsetinn heimsótti FFA – afmælishátíð í Dreka

Skapti Hallgrímsson skrifar
24. júlí 2026 | kl. 10:30

Teljari kominn á leiðina upp að Skólavörðu

Snæfríður Ingadóttir skrifar
16. júlí 2026 | kl. 08:00

Landsleikir, Allir með, skautasýning og ganga

Haraldur Ingólfsson skrifar
02. júní 2026 | kl. 06:00