Fara í efni
Ferðafélag Akureyrar

Hvatasjóður: Ein milljón til Akureyrar

Frá „Allir með“-æfingu í Naustaskóla á Akureyri í desember 2024, fljótlega eftir að KA og Þór tóku höndum saman og hófu að bjóða upp á æfingar. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Sex verkefni íþróttafélaga á Norðurlandi eystra fengu úthlutað rúmum 2,2 milljónum króna úr Hvatasjóði íþróttahreyfingarinnar í síðustu viku. Þrjú fengu 500 þúsund krónur hvert og voru það hæstu styrkirnir. Hin verkefnin þrjú hlutu 250 þúsund krónur hvert.

KA og Þór fengu úthutað hálfri milljón fyrir verkefnið Allir með æfingar á Akureyri, sem snýr að því að ná betur til iðkenda með fötlun. Þá fékk unglingaráð knattspyrnudeildar Þórs tvo 250 þúsund króna styrki fyrir verkefni sem snúa að stuðningi við tekjulága og fótbolta fyrir öll, að því er fram kemur í tilkynningu frá Ungmennafélagi Íslands (UMFÍ).

Aðrir sem fengu 500 þúsund króna styrk voru annars vegar Tennis- og badmintonfélag Siglufjarðar, fyrir verkefni sem varðar börn og ungmenni með sérþarfir í badmintoni, hins vegar Ungmennafélag Langnesinga fyrir verkefnið Íþróttir fyrir alla – óháð tekjum heimilanna. Þá hlaut Hestamannafélagið Þjálfi á Húsavík 250 þúsund krónur fyrir verkefnið Saman í hestamennsku.

 

57 verkefni fengu 26 milljónir

Hvatasjóður íþróttahreyfingarinnar úthlutaði samtals 26 milljónum króna til 57 verkefna um allt land að þessu sinni. „Sjóðurinn styrkir verkefni sem stuðla að útbreiðslu íþróttastarfs og auka þátttöku barna og ungmenna. Sérstök áhersla er á verkefni sem tengjast börnum með fötlun, börnum frá tekjulægri heimilum og börnum með fjölbreyttan menningar- og tungumálabakgrunn,“ segir í tilkynningu UMFÍ.

„Sjóðurinn er á vegum ÍSÍ og UMFÍ með stuðningi mennta- og barnamálaráðuneytis. Hann tók til starfa í lok árs 2024 og alla jafna hafa verið veittir styrkir úr honum þrisvar sinnum á ári. Þetta er önnur úthlutun ársins úr sjóðnum. Sjóðurinn styrkir verkefni sem stuðla að útbreiðslu íþróttastarfs og auka þátttöku barna og ungmenna. Sérstök áhersla er á verkefni sem tengjast börnum með fötlun, börnum frá tekjulægri heimilum og börnum með fjölbreyttan menningar- og tungumálabakgrunn.“

Í Hvatasjóðinn geta sótt íþróttahéruð ÍSÍ og UMFÍ, íþróttafélög og deildir innan ÍSÍ og UMFÍ og sérsambönd í samstarfi við íþróttahéruð, félög eða deildir félaga.

Nánar um Hvatasjóðinn

Sex sæmd gullmerki Ferðafélags Íslands

Skapti Hallgrímsson skrifar
13. október 2026 | kl. 11:30

Sparifataganga FFA á Súlur – MYNDIR

Skapti Hallgrímsson skrifar
17. ágúst 2026 | kl. 09:00

FFA 90 ára: Súluferð í sparifötunum

Valur Sæmundsson skrifar
02. ágúst 2026 | kl. 17:00

Afmælisferð FFA í Dreka – MYNDIR

Valur Sæmundsson skrifar
28. júlí 2026 | kl. 10:15

Forsetinn heimsótti FFA – afmælishátíð í Dreka

Skapti Hallgrímsson skrifar
24. júlí 2026 | kl. 10:30

Teljari kominn á leiðina upp að Skólavörðu

Snæfríður Ingadóttir skrifar
16. júlí 2026 | kl. 08:00