Fara í efni
Ferðafélag Akureyrar

Hjólreiðar, frjálsar og útileikir Akureyrarliða

Í dag er síðasti dagur hjólreiðahátíðarinnar sem staðið hefur yfir í Eyjafirði, sem og Meistaramóts Íslands 15-22 ára í frjálsum íþróttum. Fótboltinn fer svo aftur að rúlla og bæði karlaliðin frá Akureyri eiga útileik í dag.

Lokadagur hjólreiðanna

Götuhjólreiðahelgi Hjólreiðafélags Akureyrar lýkur með Criterium-keppni á um tveggja kílómetra löngum hring á Akureyri í dag. Upplýsingar um viðburðinn má finna á vef Hjólreiðasambands Íslands og á Facebook-síðu Hjólreiðafélagsins.

Criterium-keppni fer þannig fram að brautin er hjóluð í fyrirfram ákveðinn tíma, en þegar tíminn er liðinn hjóla allir keppendur einn hring til viðbótar, svokallaðan bjölluhring.

  • Íslandsmeistaramót í Criterium kl. 10

Ræst er í U-flokkum kl. 10, A- og B-flokkum kvenna kl. 11 og A-flokki karla kl. 12. Í kvenna- og karlaflokki er hjólað í klukkutíma, auk bjölluhrings, en í 45 mínútur í U-flokkunum. Hjólað er um Goðanes og Baldursnes. Hringurinn er 2,17 kílómetrar.

Lokadagur Meistaramótsins

Lokadagur Meistaramóts Íslands í frjálsum íþróttum í flokki 15-22 ára er í dag. Keppnisgreinar dagsins eru, samkvæmt tímaseðli á vef FRÍ: Grindahlaup, hástökk, þrístökk, kúluvarp, langhlaup, spretthlaup og boðhlaup.

Útileikir Akureyrarliðanna

Bæði karlalið Akureyrar í knattspyrnunni eiga útileik í dag. Þór sækir FH heim á Kaplakrikavöll í Hafnarfirði og KA sækir Breiðablik heim á Kópavogsvöll. Tveir leikir gegn liðum á suðvesturhorninu, tveimur af örfáum liðum á landinu sem ekki hafa selt nafnið á sínum heimavelli.

Leikir dagsins eru liður í 11. umferð mótsins, þeirri síðustu í fyrri hluta hinnar hefðbundnu deildarkeppni.

  • Besta deild karla í knattspyrnu, 11. umferð
    Kaplakrikavöllur í Hafnarfirði kl. 18
    FH - Þór
  • Besta deild karla í knattspyrnu, 11. umferð
    Kópavogsöllur kl. 18
    Breiðablik - KA

Að loknum tíu umferðum er KA í 9. sæti Bestu deildar karla með tíu stig, en Þór er í 11. og næstneðsta sætinu með sex stig. Eina liðið fyrir neðan Þór er FH og stigin því afar mikilvæg fyrir bæði félögin.

Landsleikir, Allir með, skautasýning og ganga

Haraldur Ingólfsson skrifar
02. júní 2026 | kl. 06:00

Af húsaflutningum Ferðafélags Akureyrar

Hjalti Jóhannesson skrifar
04. apríl 2026 | kl. 10:30

Haldið á brattann

Hjalti Jóhannesson skrifar
21. mars 2026 | kl. 06:00

Bræðrafell

Hjalti Jóhannesson skrifar
07. mars 2026 | kl. 06:00

Gunnar Már formaður Ferðafélagsins

Valur Sæmundsson skrifar
03. mars 2026 | kl. 11:00

Smíði og flutningur gamla Lamba á Glerárdal árið 1975

Hjalti Jóhannesson skrifar
21. febrúar 2026 | kl. 06:00