Fara í efni
Ferðafélag Akureyrar

Gunnar Líndal til Nýs Landspítala á Akureyri

Gunnar Líndal Sigurðsson hefur verið ráðinn staðarverkfræðingur hjá Nýjum Landspítala ohf. (NLSH) vegna uppbyggingar félagsins á nýrri byggingu við Sjúkrahúsið á Akureyri (SAk). Þetta kemur fram í tilkynningu frá NLSH.

Gunnar, sem er iðnaðarverkfræðingur og MBA executive, skv. fréttatilkynningu, hefur starfað hjá SAk síðastliðin níu ár og hefur hann sinnt stjórnunarstörfum, „verið forstöðumaður rekstrardeildar, verkefnastjóri SAk varðandi undirbúnining og notendasamráð fyrir nýbygginguna auk þess að leiða fjölda annarra þverfaglegra verkefna, vinnuhópa og nefndir. Gunnar Líndal gengdi einnig stöðu bæjarfulltrúa á Akureyri sem oddviti L-listans, í skamman tíma árið 2022. Þá hefur hann sinnt störfum fyrir handboltahreyfinguna á Akureyri, bæði í barna- og unglingaflokkum, hjá karlaliði Þórs og kvennaliði KA/Þórs.“

Stefnt að verklokum 2030

„Ný legudeildarbygging mun gjörbreyta aðstæðum sjúklinga sem við núverandi aðstæður liggja á fjölbýlum og einnig er skortur á einangrunarherbergjum. Auk þess er húsnæði geðdeildarinnar í dag óviðunandi fyrir starfsemina og staðsetning hennar óhentug,“ segir í tilkynningunni.

Í nýbyggingunni, sem tengist núverandi húsnæði verður komið upp aðstöðu fyrir skurðlækningadeild (36 stofum), lyflækningadeild (36 stofum) og geðdeild (12 sjúkrastofum og tveimur öryggiseiningum fyrir geðgjörgæslu) ásamt stoðrýmum „og þá verður til staðar glæsileg nútím dag- og göngudeild geðdeildar.“

„Fyrir liggur að ráðast þarf í endurgerð á um 1.300 m2 vegna tengingar núverandi tengibyggingar við nýbyggingu. Nýbyggingin verður  á svæði nú er bílaplan SAk, sunnan við núverandi húsnæði „og því þarf að gera ráð fyrir færslu þeirra bílastæða sem hverfa auk þess að fjölga þarf bílastæðum í takt við aukið byggingarmagn á lóðinni.“

Framkvæmd á gatna- og veitnagerð auk jarðvinnu á grunni hússins hefst nú í sumar, auk þess sem vinnu- og verkefnabúðir fyrir verktaka og NLSH ohf. verða settar upp vestan megin við Sel, vestasta hús á lóð SAk. Upphaflega var gert ráð fyrir verklokum 2027, með fyrirvara um fjárheimildir en skv. áðurnefndri tilkynningu verður unnið að uppsteypu hússins og innri frágangi á árunum 2027 til 2030.

Gunnar Líndal mun starfa í hlutastörfum fyrir SAk og NLSH næstu þrjá mánuði en frá og með 1. september mun hann starfa að fullu sem staðarverkfræðingur á vegum NLSH í nýbyggingarverkefninu á SAk.

Landsleikir, Allir með, skautasýning og ganga

Haraldur Ingólfsson skrifar
02. júní 2026 | kl. 06:00

Af húsaflutningum Ferðafélags Akureyrar

Hjalti Jóhannesson skrifar
04. apríl 2026 | kl. 10:30

Haldið á brattann

Hjalti Jóhannesson skrifar
21. mars 2026 | kl. 06:00

Bræðrafell

Hjalti Jóhannesson skrifar
07. mars 2026 | kl. 06:00

Gunnar Már formaður Ferðafélagsins

Valur Sæmundsson skrifar
03. mars 2026 | kl. 11:00

Smíði og flutningur gamla Lamba á Glerárdal árið 1975

Hjalti Jóhannesson skrifar
21. febrúar 2026 | kl. 06:00