Fara í efni
Ferðafélag Akureyrar

Bikar, blómvöndur og tvö töp fyrir liði ÍBV

GAMLA ÍÞRÓTTAMYNDIN – 124

Knattspyrnulið Íþróttabandalags Akureyrar (ÍBA) og Íþróttabandalags Vestmannaeyja (ÍBV) mættust tvo daga í röð á Akureyrarvelli haustið 1972; laugardag 30. september og sunnudag 1. október. Fyrri leikurinn var liður í bikarkeppni KSÍ en sá síðari var bæjakeppni en slíkir leikir voru nokkuð algengir á árum áður. Skemmst er frá því að segja að Eyjamenn unnu báða leikina; bikarleikurinn endaði 3:0 en seinni viðureignin 5:4. 

  • ÍBA sigraði árið 1972 í 2. deild, næst efstu deild Íslandsmótsins. Myndin er tekin fyrir bikarleikinn þegar Eyjamenn óskuðu Akureyringum  til hamingju með deildarmeistaratitilinn með því að færa þeim blómvönd. Þormóður Einarsson fyrirliði ÍBA er til vinstri en fyrirliði ÍBV er Ólafur Sigurvinsson. Dómatríóið skipuðu, frá vinstri, línuverðirnir Róbert Jónsson og Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson og dómarinn Hinrik Lárusson. Eftir bikarleikinn afhenti Jón Magnússon varaformaður KSÍ Þormóði fyrirliða ÍBA svo bikar fyrir sigur í 2. deildinni.

Til gamans má geta þess að Ásgeir Sigurvinsson (bróðir Ólafs fyrirliða), að margra mati besti knattspyrnumaður Íslands, tók þátt í báðum leikjum og skoraði eitt mark seinni daginn, í bæjakeppninni. Þetta voru einu leikir Ásgeirs á Akureyrarvelli, a.m.k. í meistaraflokki.

Ásgeir var 17 ára og hélt utan í atvinnumennsku árið eftir. Hann náði þó að leika einu sinni gegn ÍBA á Íslandsmótinu það ár og gerði þá eitt mark, þegar Eyjamenn unnu Akureyringa 4:0 í Njarðvík (þar sem heimaleikir ÍBV fóru fram vegna eldgossins sem hófst í Eyjum í janúar þetta ár).

ÍBV varð bikarmeistari 1972, vann FH 2:0 í úrslitaleik keppninnar á Melavellinum í nóvember.

Landsleikir, Allir með, skautasýning og ganga

Haraldur Ingólfsson skrifar
02. júní 2026 | kl. 06:00

Af húsaflutningum Ferðafélags Akureyrar

Hjalti Jóhannesson skrifar
04. apríl 2026 | kl. 10:30

Haldið á brattann

Hjalti Jóhannesson skrifar
21. mars 2026 | kl. 06:00

Bræðrafell

Hjalti Jóhannesson skrifar
07. mars 2026 | kl. 06:00

Gunnar Már formaður Ferðafélagsins

Valur Sæmundsson skrifar
03. mars 2026 | kl. 11:00

Smíði og flutningur gamla Lamba á Glerárdal árið 1975

Hjalti Jóhannesson skrifar
21. febrúar 2026 | kl. 06:00