Fara í efni
Ferðafélag Akureyrar

17 teymi hefja þátttöku í Slipptöku Driftar EA

Starfsfólki DriftarEA, frá vinstri: Kolfinna María Níelsdóttir, leiðtogi markaðs- og viðburðamála, Svava Björk Ólafsdóttir, sérfræðingur í nýsköpun, Sesselja Ingibjörg Barðdal Reynisdóttir, framkvæmdastýra, Kristján Þór Júlíusson, stjórnarformaður og Hreinn Þór Hauksson, leiðtogi frumkvöðla og fjárfestinga.

„Það er greinilegt að frumkvöðlaumhverfið á Norðurlandi er í mikilli sókn. Áhugi á verkefninu hefur vaxið jafnt og þétt og með hópnum í ár hafa um 40 teymi á Norðurlandi tekið þátt í Slipptökuferlinu hjá Drift EA,“ segir Sesselja Ingibjörg Barðdal Reynisdóttir, framkvæmdastýra Driftar EA í kjölfar þess að 17 nýsköpunarteymi hófu þátttöku í svokallaðri Slipptöku.

Þetta er í þriðja skipti sem DriftEA heldur Slipptöku. Sú fyrsta fram 2024.

„Slipptakan snýst fyrst og fremst um að hjálpa góðum hugmyndum að komast hraðar áfram. Þarna fá þátttakendur tækifæri til að þróa viðskiptahugmyndir sínar áfram og undirbúa næstu skref fyrirtækjanna. Það skiptir nefnilega gríðarlega miklu máli að frumkvöðlar fái tækifæri til að prófa hugmyndir sínar, fá hreinskilna endurgjöf og byggja upp tengslanet á fyrstu stigum verkefnisins,“ segir Sesselja.

Fjölbreytt verkefni úr ólíkum geirum

Verkefnin sem taka þátt í Slipptökunni í ár endurspegla fjölbreytni og metnað í norðlensku frumkvöðlasamfélagi að sögn Sesselju. Þar má meðal annars finna verkefni á sviði sjálfbærrar uppbyggingar, heilbrigðis- og velferðarlausna, matvæla og drykkjarvöru, skapandi greina, hugbúnaðar, ferðaþjónustu og grænnar tækni.

„Það sem gerir Slipptökuna svo skemmtilega er hversu ólík verkefnin eru. Þar mætast fólk úr alls konar geirum með mismunandi bakgrunn en sameiginlegan drifkraft til að skapa eitthvað nýtt og búa til nýjar lausnir,“ segir Sesselja.

Fyrsta skrefið að frekari stuðningi

Að lokinni Slipptökunni tekur við valferli þar sem stjórn Driftar EA metur hvaða teymi komast áfram í Hlunninn (e. incubator), áframhaldandi stuðningsumhverfi Driftar EA. Þar fá teymi aðgang að vinnuaðstöðu, handleiðslu og sérfræðiráðgjöf í allt að eitt ár ásamt möguleika á fjárfestingu.

„Slipptakan er mikilvægur stökkpallur fyrir frumkvöðla sem vilja þróa hugmyndir sínar áfram. Þó öll verkefni fari kannski ekki áfram í Hlunninn sjáum við aftur og aftur hversu mikið teymi ná að styrkja verkefnin sín í gegnum ferlið, byggja upp tengslanet og undirbúa næstu skref í sinni vegferð,“ segir Sesselja.

Landsleikir, Allir með, skautasýning og ganga

Haraldur Ingólfsson skrifar
02. júní 2026 | kl. 06:00

Af húsaflutningum Ferðafélags Akureyrar

Hjalti Jóhannesson skrifar
04. apríl 2026 | kl. 10:30

Haldið á brattann

Hjalti Jóhannesson skrifar
21. mars 2026 | kl. 06:00

Bræðrafell

Hjalti Jóhannesson skrifar
07. mars 2026 | kl. 06:00

Gunnar Már formaður Ferðafélagsins

Valur Sæmundsson skrifar
03. mars 2026 | kl. 11:00

Smíði og flutningur gamla Lamba á Glerárdal árið 1975

Hjalti Jóhannesson skrifar
21. febrúar 2026 | kl. 06:00