Fara í efni
Birgir Orri Ásgrímsson

Einlæg jólagleði á Minjasafninu

Myndir: Skapti Hallgrímsson

Fjöldi fólks hefur lagt leið sína á Minjasafnið á Akureyri á aðventunni og ekki kom á óvart að stór barnahópur mætti þangað á laugardaginn því auglýst hafði verið von væri á góðum gestum klukkan hálf þrjú – jólasveinum úr Dimmuborgum í Mývatnssveit, „ef þeir hafa lært á klukku,“ eins og sagði í tilkynningu frá safninu.

Bræðurnir úr Dimmuborgum vita augljóslega hvað tímanum líður því þeirra mættu á hárréttu augnabliki og sungu og trölluðu með börnunum í drjúga stund við undirleik Ívars Helgasonar.

Margir hafa komið í safnið undanfarið sem fyrr segir, m.a. 889 nemendur úr leik- og grunnskólum bæjarins, og nemendur af erlendum uppruna í Menntaskólanum á Akureyri.

Skemmtilegar jólasýningar standa nú yfir í Nonnahúsi, á Minjasafninu og Iðnaðarsafninu. Á Minjasafninu er til dæmis sýningin Verkstæði jólasveinsins sem var í Amaro-glugganum á árum áður. Sagt var frá henni í vikulegum pistli um safnkost bæjarins á akureyri.net fyrir skemmstu - sjá hér: Verkstæði jólasveinsins í Amaro. Söfnin eru opin daglega frá 13-16 og aðgangur er ókeypis fyrir fullorðna í fylgd með börnum!

Ívar Helgason lék á hljómborð og þeir Aron Freyr Ívarsson sungu með börnunum og jólagestunum úr Dimmuborgum.

Að lesa um afa

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
14. mars 2026 | kl. 11:30

Innflytjendur, samningar og staðreyndir

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
12. desember 2025 | kl. 06:00

Hvorki „allt lokað“ né „allt opið“

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
18. júní 2025 | kl. 19:30

Alþjóðaflugvöllurinn á Akureyri: Hvar er Icelandair?

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
26. febrúar 2025 | kl. 11:45

Lykill að áframhaldandi velgengni

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
26. nóvember 2024 | kl. 18:50

Hvað er gervigreind?

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
04. nóvember 2023 | kl. 14:50