Fara í efni
Birgir Orri Ásgrímsson

Spegill þjóðar – sýning og fyrirlestur í dag

Myndir: GVA

Sýningin Spegill þjóðar verður opnuð í dag á Minjasafninu á Akureyri. Þar getur að líta ljósmyndir frá 50 ára ferli hins kunna  fréttaljósmyndara Gunnars V. Andréssonar. Hluti af sýningaropnun er ljósmyndafyrirlestur Gunnars og Sigmundar Ernis Rúnarssonar, sem er hluti fyrirlestraraðarinnar Fortíðin í nýju ljósi!

Gunnar og Sigmundur Ernir gáfu á síðasta ári út bókina Spegill þjóðar sem tilnefnd var til íslensku bókmenntaverðlaunanna. Í spjalli sínu fara þeir yfir valdar myndir úr ljósmyndasögu Gunnars.

Sýningin er úrval mynda af sýningu Ljósmyndasafns Reykjavíkur, Samferðamaður. Til viðbótar var bætt við nokkrum myndum frá Akureyri eða sem snerta sérstaklega sögu þessa landshluta.

Myndir: GVA

Blaðamaður án orða

„Á sýningunni Spegill þjóðar birtast augnablik úr sögunni. Augnablik sem fest eru á filmu og um leið í þjóðarminnið af fréttaljósmyndaranum Gunnari V. Andréssyni á 50 ára ferli hans sem fréttaljósmyndara frá 1966 til 2018,“ segir í tilkynningu um viðburð dagsins. „Glöggir lesendur dagblaðanna Tímans, Vísis, DV (Dagblaðið-Vísir), Fréttablaðsins eða fréttavefsins visir.is, kannast við skammstöfunina GVA undir myndefni miðlanna. Þessar myndir eru ómetanleg heimild um íslenskt þjóðlíf, sveipaðar tíðaranda hvers skeiðs fyrir og sýna glöggt breytingarnar sem urðu á íslensku samfélagi. Það er langur vegur á milli bóndans í Reykjavík að stíga með mjólkurbrúsana sína upp í strætó 1979 og mynda sem gefa innsýn inn í eftirmála efnahagshrunsins 2008.“

Í kynningunni segir ennfremur: „Gunnar er blaðamaður án orða. Ávallt mættur þar sem eitthvað fréttnæmt var að gerast með frásagnargildi ljósmyndarinnar að leiðarljósi frekar en fagurfræðilegt gildi hennar. En í flestum myndum sínum tekst honum að tvinna þetta tvennt saman.“

  • Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, og Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri Reykjavíkur, opna sýninguna kl. 16.00
  • Fyrirlestur Sigmundar og Gunnars hefst kl. 17.00.

Að lesa um afa

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
14. mars 2026 | kl. 11:30

Innflytjendur, samningar og staðreyndir

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
12. desember 2025 | kl. 06:00

Hvorki „allt lokað“ né „allt opið“

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
18. júní 2025 | kl. 19:30

Alþjóðaflugvöllurinn á Akureyri: Hvar er Icelandair?

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
26. febrúar 2025 | kl. 11:45

Lykill að áframhaldandi velgengni

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
26. nóvember 2024 | kl. 18:50

Hvað er gervigreind?

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
04. nóvember 2023 | kl. 14:50