Fara í efni
Umræðan

Þrjú ungmenni úr SA á leið á Evrópumót

Nökkvi Már Valsson, Markús Orri Óskarsson og Harpa Hrafney Karlsdóttir fara fyrir hönd Íslands á Evrópumót ungmenna í skák í haust. Mynd: Áskell Örn Kárason.

Barna- og unglingastarf Skákfélags Akureyrar (SA) hefur jafnan verið öflugt og nú hafa þrír ungir skákmenn félagsins hafa verið valdir til að keppa fyrir Íslands hönd á Evrópumóti ungmenna í skák sem fram fer á Krít í nóvember. Það eru þau Markús Orri Óskarsson, sem keppir í flokki U18, Harpa Hrafney Karlsdóttir í flokki U14 stúlkna og Nökkvi Már Valsson í flokki U12. Mótið fer fram dagana 2.-13. nóvember.

Áskell Örn Kárason, formaður Skákfélags Akureyrar, segir árangur krakkanna ánægjulegan og til marks um öflugt unglingastarf innan félagsins. „Nokkrir af ungu iðkendunum hjá Skákfélagi Akureyrar hafa verið að ná góðum árangri að undanförnu og eru í fremstu röð sinna jafnaldra á landsvísu,“ segir Áskell.

Varðandi undirbúninginn fyrir Evrópumótið segir Áskell að þau stundi öll reglulegar æfingar hjá SA og sæki jafnframt vikulega tíma hjá Skákskóla Íslands. Þau leggja einnig töluverða vinnu í eigin undirbúning, meðal annars með því að leysa skákþrautir og tefla á mótum og á netinu.

  • Markús Orri er reynslumestur hópsins og tekur nú þátt í sínu fjórða Evrópumóti. Hann einbeitir sér meðal annars að erfiðum skákþrautum og skákbyrjunum og reynir að taka þátt í sem flestum mótum sem hæfa styrkleika hans.
  • Harpa Hrafney er að fara á sitt fyrsta Evrópumót. Hún vinnur að því að bæta sig með skákþrautum og mótahaldi og hefur einnig fengið einkaþjálfun af og til.
  • Nökkvi Már tekur þátt í sínu öðru Evrópumóti. Hann leysir skákþrautir, teflir töluvert á netinu og tekur þátt í nær öllum mótum sem hann kemst á.

Að sögn Áskels verður mótið mikil áskorun fyrir þau, enda mæta þar ungir skákmenn sem hafa stundað íþróttina af miklum krafti víðs vegar úr Evrópu. Markmið Akureyringanna sé fyrst og fremst að gera sitt besta. „Þau yngri geta stefnt að því að verða að minnsta kosti í miðjum hópi keppenda, en Markús, sem er kominn með meiri reynslu, gæti stefnt ofar,“ segir Áskell.

Öll þrjú líta þau jafnframt á þátttökuna sem mikilvægt tækifæri til að öðlast reynslu og styrkja sig enn frekar í skákíþróttinni. Fyrir Skákfélag Akureyrar er val þeirra jafnframt ánægjuleg staðfesting á því að ungt skákfólk félagsins er að hasla sér völl á landsvísu.

Bókasöfnin okkar

Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar
28. september 2026 | kl. 06:00

Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein

Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar
27. september 2026 | kl. 06:00

Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
23. september 2026 | kl. 20:00

Hvað ef það væri samfélagsgarður við Mýrarveg?

Eyrún Gígja Káradóttir skrifar
22. september 2026 | kl. 19:00

Ónýtt drasl-fólkið

Helgi Þórsson skrifar
15. september 2026 | kl. 20:00

Björgunarþyrla á Akureyri – staða máls

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
13. september 2026 | kl. 19:30