Fara í efni
Umræðan

Skák: Þorsteinn öldungameistari

Verðlaunahafar á Íslandsmóti öldunga í skák, 65 ára og eldri: Sigurður Eiríksson úr SA sem varð í þriðja sæti, Íslandsmeistarinn Þorsteinn Þorsteinsson úr TV og Áskell Örn Kárason úr SA sem varð í 2. sæti. Mynd: skak.is.

Þorsteinn Þorsteinsson úr Taflfélagi Vestmannaeyja (TV) varð hlutskarpastur á Íslandsmóti öldunga í skák, 65 ára og eldri, sem fram fór á Akureyri um hvítasunnuhelgina. Þrír keppendur Skákfélags Akureyrar (SA) röðuðu sér í næstu sæti.

Keppendur voru alls tíu talsins og kepptu allir við alla eftir atskákarfyrirkomulagi, þar sem umhugsunartíminn er styttri en í kappskákum af hefðbundnara taginu. Fyrirfram var búist við því að baráttan um Íslandsmeistaratitilinn myndi standa milli Þorsteins og Áskels Arnar Kárasonar úr SA en þeir voru stigahæstu keppendurnir og auk þess í góðri æfingu eftir að hafa teflt með sveit Íslands á heimsmeistaramóti öldungasveita í Albaníu nýverið.

Það gekk eftir og eftir jafntefli í innbyrðisviðureign þeirra var spurningin bara hvernig þeim reiddi af gegn öðrum keppendum. Þorsteinn gerði eitt jafntefli til viðbótar og endaði því með 8 vinninga úr skákunum 9. Áskell Örn þurfti hins vegar að sætta sig við einu jafntefli meira og lauk leik með 7,5 vinninga í öðru sæti. Sigurður Eiríksson úr SA varð þriðji með 6,5 vinninga og þriðji keppandinn frá SA, Haraldur Haraldsson, varð fjórði með 5,5 vinninga.

Bókasöfnin okkar

Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar
28. september 2026 | kl. 06:00

Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein

Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar
27. september 2026 | kl. 06:00

Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
23. september 2026 | kl. 20:00

Hvað ef það væri samfélagsgarður við Mýrarveg?

Eyrún Gígja Káradóttir skrifar
22. september 2026 | kl. 19:00

Ónýtt drasl-fólkið

Helgi Þórsson skrifar
15. september 2026 | kl. 20:00

Björgunarþyrla á Akureyri – staða máls

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
13. september 2026 | kl. 19:30