Fara í efni
Umræðan

Þór/KA tapaði og spenna eykst á botninum

Arna Eiríksdóttir, sem gerði sigurmarkið í fyrri leik liðanna í sumar, skallar hér að marki í seinni hálfleik í kvöld, en hafði ekki erindi sem erfiði frekar en aðrir leikmenn Þórs/KA. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson

Þór/KA tapaði 1:0 fyrir Aftureldingu í gærkvöldi á Þórsvellinum (SaltPay vellinum) í Bestu deild kvenna, efstu deild Íslandsmótsins í knattspyrnu. Fyrir leikinn var Afturelding á botni deildarinnar en er nú komið upp í næst neðsta sæti – aðeins einu stigi á eftir Þór/KA.

Gestirnir skoruðu strax á fyrstu mínútu leiksins; Ísafold Þórhallsdóttir kom boltanum í markið þegar um það bil 40 sekúndur voru liðnar en þá má segja að Stelpurnar okkar í Þór/KA hafi tekið völdin. Þær voru meira og minna með boltann í fyrri hálfleik, fengu góð tækifæri til að skora en náðu ekki að nýta neitt þeirra. Jafnræði var með liðunum í seinni hálfleik, Þór/KA sótti undan töluverðum vindi en náði aldrei að ógna marki Aftureldingar að neinu ráði.

Tvö lið falla úr deildinni. Staða neðstu liða er sem  hér segir, þegar sex umferðir eru eftir:

  • Keflavík 12 leikir – 10 stig
  • Þór/KA 12 leikir – 10 stig
  • Afturelding 12 leikir – 9 stig
  • KR 13 leikir – 7 stig

Þór/KA á þessa leiki eftir:

  • Selfoss – Þór/KA
  • Þór/KA – Þróttur
  • Þór/KA – ÍBV
  • Keflavík – Þór/KA
  • Þór/KA – Stjarnan
  • KR – Þór/KA

Hér má stöðu allra lið í deildinni

Smellið hér til að sjá leikskýrsluna

Hvar á að leggja Blöndulínu 3?

Karl Ingólfsson skrifar
23. apríl 2024 | kl. 18:00

Svona er síminn hannaður til að stela athygli okkar

Skúli Bragi Geirdal skrifar
22. apríl 2024 | kl. 08:20

Hvar hvílir Jónas frá Hrafnagili?

Sunna Vilborg Jónsdóttir skrifar
21. apríl 2024 | kl. 06:00

Boðskapur frá forsetaframbjóðanda

Ásdís Rán skrifar
19. apríl 2024 | kl. 14:00

Stórkostleg upplifun

Haraldur Hauksson skrifar
14. apríl 2024 | kl. 14:30

Þjónusta þjóðkirkju við landsbyggðina

Guðrún Karls Helgudóttir skrifar
12. apríl 2024 | kl. 15:15