Fara í efni
Umræðan

Boðskapur frá forsetaframbjóðanda

Það hafa kannski margir klórað sér í hausnum yfir þátttöku minni í forsetakosningunum þar sem ég stíg nú eins og landkönnuður á nýjum slóðum og tek með mér ný og fersk sjónarhorn, smá húmor og djúpstæða trú á mátt hins ómögulega. Ég er ekki hinn hefðbundni frambjóðandi en ég er án efa ferskur blær inn í flokk frambjóðenda og það er einmitt það sem gerir þetta stóra verkefni svo skemmtilegt og hvetjandi.
 
Boðskapurinn sem ég kem með er: Allt er mögulegt sama hver þú ert eða hvaðan þú kemur - bara ef þú bara þorir!
 
Flest okkar óttast breytingar og kannski líka nýjungar, aðrir elska þær, fyrir mér eru þær eins og hlaðborð af endalausum möguleikum því breytingar eru óumflýjanlegur partur af lífinu og ég hef lært að að taka á móti þeim með opnum hug, bros á vör og þakklæti.
 
Sem frambjóðandi ætla ég ekki að lofa upp í ermarnar með pólitískri þvælu og innantómum loforðum en þú mátt hugsa mig sem konu sem er óhrædd við að standa upp þegar á móti blæs, tjá skoðun sína, konu sem skilur baráttu hversdagslífsins og sem trúir á ótrúlega möguleika okkar allra ásamt því að gefa von fyrir gamlar og nýjar kynslóðir, - það er ég.
 
Við vitum það öll að gleði ásamt smá von er besta lyfið og við þurfum góðan skammt af því í okkar skammdegi, kulda og pólitíska umhverfi! Við saman erum hjarta og sál þessarar þjóðar og með samstöðu vöxum við í átt að bjartri framtíð og spennandi nýjum tímum.
 
Mín kenning er að við þurfum ekki fleiri pólitíkusa eða valdafólk í stöðu forseta Íslands. Forsetinn okkar á að vera ópólitískur, mannlegur og gæddur miklum persónutöfrum, hann þarf að vera trúr og traustur sinni þjóð, með kjark til að standa upp þegar á móti blæs. Hann þarf að getað hlustað á fólkið sitt og vera óhræddur með sterka rödd til að vekja athygli á því sem betur má fara.
 
Meðfram mínum fyrirsætuferli hef ég starfað sem óskipaður sendiherra Íslands í mínum störfum erlendis síðustu áratugi og hef tekið þátt í hinum ýmsu viðskiptum ásamt því að koma fram fyrir hönd Íslands í viðtölum og uppákomum. Fyrir utan fyrirsætustörf sem flestir þekkja mig fyrir þá er ég menntuð í viðskiptum og stjórnun og svo er ég líka þyrluflugmaður.
 
Með minni þátttöku í forsetakosningunum brjótum við blað í sögunni, opnum dyr fyrir nýjungum og fögnum fjölbreytileikanum. Við eigum að þora að láta okkur dreyma stórt, njóta þess að vera til og halda í vonina um bjartari tíma og betra líf.
 
Ég er núna að safna meðmælum til að taka þátt í forsetabaráttunni og mig langar að hvetja ykkur til að gera baráttuna líflegri og skemmtilegri með minni þátttöku.
 
Til að skrá þitt meðmæli skráir þú þig inn með rafrænum skilríkjum á www.asdisran.is
 
Ásdís Rán hyggst bjóða sig fram til embættis forseta Íslands

Látið hjarta Akureyrar í friði

Guðjón Heiðar Pálsson skrifar
01. júlí 2025 | kl. 06:00

Fiskeldi og samfélagsábyrgð

Eyjólfur Ármannsson skrifar
30. júní 2025 | kl. 09:45

Hver borgar brúsann?

Ingibjörg Isaksen skrifar
28. júní 2025 | kl. 12:00

Börn eiga skilið að alast upp í friði – þrátt fyrir breyttar aðstæður

Halldóra K. Hauksdóttir skrifar
25. júní 2025 | kl. 16:30

Fréttir af baggavélum og lömbum

Heiða Ingimarsdóttir skrifar
25. júní 2025 | kl. 06:00

Leiðrétting veiðigjalda – tækifæri, ekki árás

Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar
24. júní 2025 | kl. 16:00