Fara í efni
Umræðan

Þór/KA sækir topplið Þróttar heim í dag

Sandra María Jessen, til vinstri, og Þróttarinn Jelena Tinna Kujundzic þegar Þór/KA vann Þrótt 2:1 í þriðju umferð Bestu deildarinnar í Boganum í maí á síðasta ári. Sandra gerði bæði mörk Akureyrarliðsins. Mynd: akureyri.net

Þór/KA heimsækir topplið Þróttar í Bestu deild kvenna í knattspyrnu í dag. Flautað verður til leiks í Laugardalnum kl. 17.00. Keppni í 8. umferð efstu deildar Íslandsmótsins hófst í gær með leik Tindastóls og Vals (2:2) og fjórir leikir eru á dagskrá í dag. 

Þróttur tyllti sér í toppsætið með sigri á FHL í 7. umferðinni á meðan Breiðablik tapaði fyrir FH. Þór/KA vann Stjörnuna og er áfram í 4. sætinu með 15 stig. Þróttur (19 stig), FH (16) og Breiðablik (16) eru í þremur efstu sætunum, en þetta eru einmitt þrír næstu mótherjar Þórs/KA. Fyrst er það útileikur gegn Þrótti í deildinni í dag, þá heimaleikur gegn FH í bikarnum og svo heimaleikur gegn Breiðabliki í deildinni. Það er því óhætt að segja að verkefnin fram undan hjá Þór/KA séu verðug.

  • Besta deild kvenna í knattspyrnu
    AVIS-völlurinn í Laugardal kl. 17
    Þróttur - Þór/KA

Þór/KA vann báðar viðureignir þessara liða í deildarkeppninni í fyrra, 2:1 á heimavelli og 4:2 á útivelli. Liðin gerðu síðan markalaust jafntefli á heimavelli Þróttar í efri hluta deildarinnar í lok keppnistímabilsins.

Staðan í deildinni

  • Leikurinn verður sýndur á Stöð 2 Sport
  • Þróttarar hafa auglýst að frítt sé á völlinn í dag

Akureyrarbær brýtur gegn viðmiðum Barnvæns sveitarfélags

Ungmennaráð Akureyrar skrifar
14. júní 2025 | kl. 10:00

Heil­brigðis­kerfið í bakk­gír

Ingibjörg Isaksen skrifar
12. júní 2025 | kl. 11:00

Hvers vegna öll þessi leynd?

Hilda Jana Gísladóttir og Sindri Kristjánsson skrifa
11. júní 2025 | kl. 14:45

Tollar ESB og fullunninn fiskur

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
08. júní 2025 | kl. 10:00

Skipulagsbreytingar og grundvallaratriði

Árni Guðmundsson skrifar
06. júní 2025 | kl. 21:45

Héraðs­vötn og Kjalöldu­veitu í nýtingar­flokk

Jens Garðar Helgason og Ólafur Adolfsson skrifa
06. júní 2025 | kl. 21:30