Fara í efni
Umræðan

Sanngjarn sigur FH og Þór/KA er úr leik

FH-ingar fyrsta marki sínu í kvöld, þegar Katla María Þórðardóttir skoraði á 11. mínútu. Mynd: Ármann Hinrik

Þór/KA féll úr bikarkeppni kvenna í knattspyrnu í kvöld þegar liðið tapaði 3:1 fyrir FH á heimavelli í átta liða úrslitum. FH er því komið í undanúrslit ásamt ÍBV, Val og Breiðabliki sem sigraði HK örugglega í Kópavogsslagnum í kvöld.

Sigur FH-inga í Boganum var verðskuldaður því þeir voru mun grimmari, sérstaklega í seinni hálfleik. Leikmenn Þórs/KA voru kraftlitlir, virkuðu  þreyttir og einbeitingu skorti of oft.

Katla María Þórðardóttir kom FH í 1:0 á 11. mínútu eftir óskiljanlegan varnarleik heimaliðsins. Hún fékk sendingu inn á vítateig beint úr aukaspyrnu úti á velli, var alein og hafði nægan tíma til að athafna sig áður en hún skoraði. 

Karen María Sigurgeirsdóttir jafnaði 1:1 á 21. mín. Kimberley Dóra náði boltanum nokkru framan við miðju, snéri af sér varnarmann og sendi á Ellie Rose Moreno sem kom boltanum til Karenar Maríu. Hún lét vaða á markið, rétt utan vítateigsbogans, skotið var hnitmiðað og boltinn fór í netið, alveg út við stöng.

Ekki voru liðnar nema fjórar mínútur af seinni hálfleik þegar FH fékk vítaspyrnu. Varnarmenn Þórs/KA voru alltof langt frá Valgerði Ósk Valsdóttur þegar hún fékk boltann yst í vítateignum, Agnes Birta rauk til og reyndi að að stöðva hana en sparkaði FH-inginn niður og Maya Lauren Hansen skoraði örugglega úr vítinu.

Elísa Lana Sigurjónsdóttir gerði þriðja mark FH með skoti utan vítateigs þegar sjö mínútur lifðu leiks, enn eftir klaufagang heimaliðsins; boltinn lá í netinu 13 sekúndum eftir innkast Þórs/KA á vallarhelmingi FH. Elísa Lana fékk boltann aftan við miðju, tók á rás og komst upp að vítateig án þess að varnarmenn gerðu tilraun til að stöðva hana.

Leikskýrslan

Akureyrarbær brýtur gegn viðmiðum Barnvæns sveitarfélags

Ungmennaráð Akureyrar skrifar
14. júní 2025 | kl. 10:00

Heil­brigðis­kerfið í bakk­gír

Ingibjörg Isaksen skrifar
12. júní 2025 | kl. 11:00

Hvers vegna öll þessi leynd?

Hilda Jana Gísladóttir og Sindri Kristjánsson skrifa
11. júní 2025 | kl. 14:45

Tollar ESB og fullunninn fiskur

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
08. júní 2025 | kl. 10:00

Skipulagsbreytingar og grundvallaratriði

Árni Guðmundsson skrifar
06. júní 2025 | kl. 21:45

Héraðs­vötn og Kjalöldu­veitu í nýtingar­flokk

Jens Garðar Helgason og Ólafur Adolfsson skrifa
06. júní 2025 | kl. 21:30