Akureyrarbær brýtur gegn viðmiðum Barnvæns sveitarfélags
14. júní 2025 | kl. 10:00
KA leikur gegn Vestra á Ísafirði í dag, þegar fjórir leikir fara fram í Bestu deildinni, efstu deild Íslandsmótsins í knattspyrnu.
KA-menn hafa fikrað sig upp stigatöfluna í deildinni með tveimur sigrum og tveimur jafnteflum í síðustu fjórum leikjum. Á sama tíma hefur Vestri sigið af toppnum eftir góða byrjun í vor. KA er í 9. sæti deildarinnar með 12 stig eftir tíu umferðir, en Vestri í 4. sætinu með 16 stig.
KA gerði 1:1 jafntefli við Stjörnuna á heimavelli í síðustu umferð, vann þar áður Fram 2:1 á útivelli, Aftureldingu 1:0 heima og gerði markalaust jafntefli í Vestmanneyjum.
Leikurinn í dag verður sýndur á Sýn Sport