Fara í efni
Umræðan

Þór sá aldrei til sólar gegn frábæru liði KR

Atli Sigurjónsson og Christian „Greko“ Jakobsen í baráttu við KR-inginn Hrafn Tómasson sem var frábær í leiknum. Myndir: Skapti Hallgrímsson
Þrjú stig úr erfiðum útileikjum og fjögur mörk skoruð eru mjög viðunandi uppskera nýliða eftir tvær umferðir í Bestu deildinni í knattspyrnu. Þannig er staðan hjá Þórsurum; þeir unnu Val 2:1 í fyrstu umferðinni en töpuðu í gær fyrir KR-ingum; Vesturbæjarliðið sigraði 5:2.
Þórsarar áttu aldrei möguleika á KR-vellinum en náðu samt að gera tvö mörk seint í leiknum sem er jákvætt.
 
Byrjunarlið Þórs var hið sama og í sigurleiknum á móti Val en allt annað var að sjá til liðsins. Ástæðan er auðvitað að hluta til sú að KR-ingar hafa miklu sterkara liði á að skipa en Valsmenn í augnablikinu og svo virtist líka sem Þórsarar hefðu strax frá byrjun ekki mikla trú á verkefninu, þeir virkuðu ragir og óöruggir; litlir í sér og ekki tilbúnir í alvöru slag af einhverjum ástæðum.
 
Vert er að geta þess að KR-ingar léku gríðarlega vel; þeir vilja vera sem mest með boltann, leika honum hratt á milli sín og nýta breidd vallarins vel – og það tókst. Þeir fóru oft illa með gestina og mörkin hefðu getað orðið fleiri, til þess gengu KR-ingar góð færi.
 

Aron Ingi Magnússon, til vinstri, og Ingimar Arnar Kristjánsson komu báðir af varamannabekknum í leiknum – eins og gegn Val í fyrstu umferðinni – og settu sannarlega mark sitt á leikinn. Ingimar skoraði í báðum leikjum og Aron Ingi, sem glímdi við meiðsli síðustu mánuði, hefur litið vel út.

Leikurinn var fjörugur strax frá byrjun, KR-ingar strax aðgangsharðari og þeir gerðu fyrsta markið á 12. mínútu: Finnur Tómas Pálmason átti þá fasta sendingu inn á vítateiginn frá hægri og Amin Cosic þrumaði boltanum í markið. Þarna var vörn Þórs illa á verði og aftur á 34. mínútu þegar Eiður Gauti Sæbjörnsson skallaði í netið eftir fyrirgjöf Luke Rae, líka frá hægri.

Litlu munaði að Sigfús Fannar Gunnarsson hefði jafnað um það til 10 mín. áður en Eiður Gauti kom KR í 2:0 hann fékk boltann vinstra megin á vellinum, lék inn í vítateig og skaut en boltinn fór í fjærstöngina. Vel gert hjá markahæsti manni Lengjudeildarinnar á síðasta ári en heppnin var ekki með Þórsurum í liði í þetta skipti.

Staðan var 2:0 í hálfleik en staðan gat verið fyrir Þórsara því á síðustu andartökunum fékk Aron Sigurðarson, fyrirliði KR, sannkallað dauðafæri en skaut yfir markið.

Luke Rae gerði þriðja mark KR með skoti utan vítateigs snemma í seinni hálfleik og Aron Sigurðarson það fjórða á 70. mín. úr vítaspyrnu eftir að Yann Emmanuel Affi braut á honum. Staðan orðin 4:0, 20 mínútur eftir og úrslitin löngu ráðin en það ánægjulega var að Þórsarar lögðu ekki árar í bát. Einnig var ánægjulegt að sjá að annan leikinn í röð settu varamenn mark sitt á frammistöðu Þórsliðsins sem sýnir að breiddin er mikil, eins og áður hefur verið vikið að; Ingimar Arnar Kristjánsson kom af varamannabekknum gegn Val og gerði sigurmarkið eftir mikilvægt framlag annars varamanns, Isaac Atanga, þeir komu einnig inn á gegn KR og skoruðu báðir, fyrst Ingimar eftir að Atanga skaut í stöng og síðan snerist dæmið við, Ingimar sendi á Atanga sem gerði seinna markið á síðustu sekúndum leiksins.

Isaac Atanga vippar skemmtilega yfir Halldór Snæ markvörð KR, boltinn fór í stöng og þaðan til Ingimars Arnars Kristjánssonar sem skoraði fyrra mark Þórs.

Ingimar skoraði á 75. mín. – breytti stöðunni í 4:1, Ástbjörn Þórðarson gerði síðan fimmta mark KR með skalla eftir hornspyrnu þegar 10 mín. voru eftir en Atanga lagaði stöðuna í blálokin.

KR-ingar voru miklu betri í leiknum eins og áður var nefnt. Voru hreinlega frábærir og það er sannarlega unun að horfa á liðið spila þegar það er í slíkum ham.
 
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, bauð á síðasta ári upp á nokkuð sem ekki hafði áður sést hér á landi; markmaður liðsins leikur það framarlega að hann er eins og 11. útileikmaðurinn, liðið leggur mikla áherslu á sóknarleikinn, verst mjög framarlega en hefðbundinn varnarleikur er Óskari og hans mönnum ekki eins ofarlega í huga að því er virðist. Liðið var í fallbaráttu á síðasta ári en Óskar hélt sínu striki, var trúr þessum nýja fótbolta og er nú að uppskera. Hann veit að með þessum leikstíl mun liðið fá á sig fleiri mörk en væri uppleggið annað, en markmiðið er þar af leiðandi að gera mörg mörk svo að leikir vinnist þótt andstæðingurinn komi boltanum í netið, jafnvel nokkrum sinnum! KR-ingar vilja bjóða upp á eins mikla skemmtun og nokkur kostur er og það er að sjálfsögðu virðingarvert. Hvort það dugi til þess að vinna titla verður að koma í ljós og vert að nefna að þjálfarinn var afar óhress í viðtölum í gær, þrátt fyrir magnaða frammistöðu og öruggan sigur, vegna markanna tveggja sem Þór gerði.
 
Þórsarar náðu sér ekki á strik að þessu sinni eins og áður var getið. Það ánægjulega er þó að þeir gáfust aldrei upp, enda lykilatriði fyrir nýliðana í sumar að mæta með því hugarfari; að allir leggi sig fram í hvert einasta skipti og leggi ekki árar í bát þótt á móti kunni að blása og það jafnvel hressilega. Margt býr í liðinu en flestir eru að þreyta frumraun í efstu deild, nokkrir lykilmenn eru mjög ungir að árum en það er fallegt að þeim skuli falin sú ábyrgð sem raun ber vitni, að þeir fái tíma til að öðlast reynslu á þessum vettvangi, jafnvel þótt þeir geri mistök; þau eru óhjákvæmilegur hluti af þroskaferlinu.
 

Leikskýrslan á vef KSÍ

Verk að vinna

Elsa María Guðmundsdóttir skrifar
23. apríl 2026 | kl. 06:00

Börnin okkar kalla - hver er að hlusta?

Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir og Elías Gunnar Þorbjörnsson skrifa
22. apríl 2026 | kl. 18:00

Okkar jörð - okkar kraftur

Herdís Júlía Júlíusdóttir skrifar
22. apríl 2026 | kl. 18:00

Andrésarleikarnir 50 ára – hálf öld af gleði, samheldni og skíðaarfleifð

Ásthildur Sturludóttir skrifar
22. apríl 2026 | kl. 11:30

Einföldum kerfið og lækkum leikskólagjöld

Heiðbjört Ósk Ófeigsdóttir skrifar
22. apríl 2026 | kl. 11:20

Grípur kerfið barnið?

Guðbjörg Anna Björnsdóttir skrifar
22. apríl 2026 | kl. 11:15