Fara í efni
Umræðan

Þór gegn Vestra í dag á Ísafirði í bikarnum

Þórsarar fagna einu þriggja marka sinna í 3-1 sigri á ÍR-ingum í 32ja liða úrslitum bikarkeppninnar. Fagna þeir áframhaldandi veru í keppninni í leikslok í dag? Mynd: Ármann Hinrik.

Átta liða úrslit bikarkeppni karla í knattspyrnu, Mjólkurbikarnum, hefjast í dag með tveimur leikjum. Fyrri leikur dagsins er viðureign Þórs og Vestra sem fram fer á Ísafirði og hefst kl. 17:30.

Þórsliðið er eina Akureyrarliðið sem enn er með í Mjólkurbikarkeppninni og fær í dag tækifæri þriðja árið í röð til að komast áfram í undanúrslit keppninnar. Takist þeim að fara áfram yrði það í fyrsta skipti síðan 2011, en þá fór liðið alla leið í úrslitaleikinn. Síðan þá hafa Þórsarar þrisvar verið nálægt því að komast í undanúrslit, 2018, 2023 og 2024, en töpuðu í öll skiptin naumlega í átta liða úrslitum, tvisvar fyrir Stjörnunni og einu sinni fyrir Víkingi.

  • Mjólkurbikarkeppni karla í knattspyrnu, átta liða úrslit
    Kerecic-völlurinn á Ísafirði kl. 17:30
    Vestri - Þór

Vestri gerði 3-3 jafntefli við HK í 32ja liða úrslitum keppninnar og fór áfram eftir vítaspyrnukeppni. Vestramenn mættu svo hinu Kópavogsliðinu, Breiðabliki, í 16 liða úrslitum á Kópavogsvelli og unnu 2-1.

Þórsarar unnu 7-0 sigur á Magna í 2. umferð bikarkeppninnar, 3-1 sigur á ÍR í 32ja liða úrslitum og unnu svo 4-1 útisigur á Selfyssingum í 16 liða úrslitunum í maí.

Aron Ingi Magnússon og Ibrahima Balde í sigurleiknum gegn ÍR í 32ja liða úrslitum bikarkeppninnar. Þeir sitja heima í dag, báðir í leikbanni vegna tveggja áminninga í keppninni. Myndir: Ármann Hinirik.

Segja má að skarð sé fyrir skildi hjá Þórsliðinu því tveir leikmenn eru í banni, þeir Aron Ingi Magnússon og Ibrahima Balde, báðir vegna tveggja áminninga í bikarleikjum í vor, auk þess sem nokkuð er um meiðsli í herbúðum Þórsliðsins. 

Leikurinn verður í beinni útsendingu Sjónvarpsins, á Rúv 2, og hefst útsending kl. 17:20.

Komið að skuldadögum

Eyjólfur Ármannsson skrifar
20. júní 2025 | kl. 09:30

Nýr vegvísir Evrópusambandsins um jafnrétti kynjanna

Clara Ganslandt skrifar
19. júní 2025 | kl. 17:00

Friðum Eyjafjörð

Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir skrifar
19. júní 2025 | kl. 10:00

Þróunarskref í þágu velferðar barna

Kristín Jóhannesdóttir skrifar
19. júní 2025 | kl. 09:00

Hvorki „allt lokað“ né „allt opið“

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
18. júní 2025 | kl. 19:30

Frelsið til þess að ráða eigin málum

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
18. júní 2025 | kl. 17:00