Fara í efni
Umræðan

Systur kveðja eftir samtals 78 ára starf

Kveðjustund! Sunnvea Ósk Guðmundsdóttir framleiðslustjóri ÚA, Ragna Finnsdóttir og Hákon Rúnarsson framleiðslustjóri landvinnslu Samherja.
Systurnar Lilja og Ragna Finnsdætur létu af störfum hjá Samherja á dögunum eftir að hafa starfað við fiskvinnslu á Fiskitanga á Akureyri í samtals 78 ár; Lilja í 26 ár og Ragna í 52 ár. Greint er frá starfslokunum á Facebook síðu fyrirtækisins.
 
„Veistu það, ég hlakka mikið til framtíðarinnar. Hérna hefur mér alla tíð liðið vel, kynnst stórum hópi frábærs samstarfsfólks og vinnuveitenda,“ sagði Lilja þegar systur voru kvaddar af samstarfsfólki fyrir helgi. „Á morgun höldum við hjónin til Króatíu og svo er bara að njóta lífsins. Það segir sig auðvitað sjálft að mér hefur liðið vel hérna, fyrst ég hef verið hérna rúman aldarfjórðung. Hjá mér hefur alltaf verið tilhlökkun að mæta til vinnu, sem segir manni að þetta hefur verið góður tími,“ sagði Lilja að loknum síðasta starfsdeginum.
 
Ragna hætti störfum degi á eftir systur sinni. „Já, ég vinn einum degi lengur en Lilja. Þetta eru orðin 52 ár og mann óraði auðvitað ekki fyrir því í upphafi en svona er nú lífið. Samherji er einstakur vinnuveitandi og starfsandinn á vinnustaðnum gerist vart betri. Hérna hefur skapast vinátta, sem ég er þakklát fyrir. Ég kveð Samherja og samstarfsfólkið með söknuði og mun örugglega kíkka í kaffi af og til.“

 

Sunnvea Ósk Guðmundsdóttir framleiðslustjóri ÚA, Lilja Finnsdóttir, Hákon Rúnarsson framleiðslustjóri landvinnslu Samherja og Jakob Atlason vinnslustjóri ÚA.

Hvað þýðir Já fyrir bændur?

Stefán Magnússon skrifar
21. ágúst 2026 | kl. 17:30

Viltu minni verðbólgu og lægri vexti?

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
21. ágúst 2026 | kl. 09:40

Hvað sparar Akureyrarbær með upptöku evru? Svar: um 400 mkr á ári

Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
16. ágúst 2026 | kl. 10:30

„Þúsund þorskar á færibandinu ...

Óli Rúnar Ástþórsson skrifar
13. ágúst 2026 | kl. 17:00

Stærð þjóðar

Pétur Björgvin Þorsteinsson skrifar
12. ágúst 2026 | kl. 06:00

Yrði Evrópusambandið bjargvættur eða bölvaldur landsbyggðanna?

Þóroddur Bjarnason skrifar
12. ágúst 2026 | kl. 06:00