Fara í efni
Umræðan

Dýptarmælirinn sýndi ekkert líf í sjónum

Mynd af Facebook síðu Samherja
Áhöfn togara Samherja, Kaldbaks EA 1, fylgdist með sólmyrkvanum í dag frá Halamiðum, norð-vestur af Ísafjarðardjúpi. Skipstjórinn segir að dýptarmælirinn hafi ekki sýnt neitt líf í sjónum rétt fyrir sjálfan almyrkvann og allt þar til birti á nýjan leik.
 
Veiðiferð Kaldbaks hófst í gær og stefnan sett vestur, eins og venjulega á þessum árstíma. Oddur Jóhann Brynjólfsson skipstjóri segir að auk hefðbundins kosts hafi að þessu sinni verið bætt við sólmyrkvagleraugum.
 
„Við gerðum hlé á veiðum og fylgdumst með þessu magnaða náttúrufyrirbrigði sem náði hámarki um klukkan korter í sex. Fæstir okkar koma til með að upplifa þetta aftur á lífsleiðinni, þótt skyggnið hefði vissulega mátt vera betra,“ segir Oddur Jóhann á Facebook síðu Samherja.  „Hérna er þoka en það dimmdi vel í um tvær mínútur og birti á nýjan leik hröðum skrefum. Ég var í brúnni og tók eftir því að dýptarmælirinn sýndi ekkert líf í sjónum rétt fyrir sjálfan almyrkvann og þannig var það þar til birti á nýjan leik.“

 

Öflugt atvinnulíf þarf gott aðgengi að lóðum

Sunna Hlín Jóhannesdóttir skrifar
30. september 2026 | kl. 20:15

Beinum kastljósinu að atvinnulífinu

Karl Eskil Pálsson skrifar
29. september 2026 | kl. 20:15

Bókasöfnin okkar

Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar
28. september 2026 | kl. 06:00

Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein

Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar
27. september 2026 | kl. 06:00

Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
23. september 2026 | kl. 20:00

Hvað ef það væri samfélagsgarður við Mýrarveg?

Eyrún Gígja Káradóttir skrifar
22. september 2026 | kl. 19:00