Fara í efni
Umræðan

Skaðaminnkandi þjónusta kynnt

Rauði krossinn við Eyjafjörð heldur kynningu á skaðaminnkunarverkefninu Frú Ragnheiði á morgun, miðvikudag 10. maí klukkan 16.30 í húsnæði sínu við Viðjulund 2 á Akureyri. Þar verður farið yfir hvað felst í þjónustu Frú Ragnheiðar og notkun á Naloxone nefúða verður kynnt, en nefúðinn getur veitt lífsbjargandi neyðaraðstoð við ofskömmtun.

Rauði krossinn á Íslandi rekur skaðaminnkunarverkefnið Frú Ragnheiður á þremur stöðum á landinu, á höfuðborgarsvæðinu, á Suðurnesjum og á Akureyri. Frú Ragnheiður vinnur eftir skaðaminnkandi hugmyndafræði sem gengur út á að takmarka skaðann og áhættuna sem getur fylgt vímuefnanotkun í æð og að bæta lífsgæði og heilsufar notenda, fremur en að reyna að fyrirbyggja notkunina sjálfa. Þannig má takmarka skaðann sem fylgir þessari notkun, bæði fyrir notendur og samfélagið í heild, segir í tilkynningu frá Rauða krossinum.

„Við hvetjum öll sem hafa áhuga á vímuefnamálum og skaðaminnkandi hugmyndafræði, hvort sem um að ræða almenning, fagfólk, notendur eða aðstandendur þeirra, til að koma að kynna sér þjónustuna,“ segir þar.

Vilja fræða til að draga úr fórdómum

„Við ákváðum að halda þessa kynningu til að leyfa almenningi að koma og kynnast starfinu, fá fræðslu og spjalla við sjálfboðaliðana okkar,“ segir Edda Ásgrímsdóttir, hjúkrunarfræðingur og hópstjóri hjá Frú Ragnheiði á Akureyri. „Við teljum mikilvægt að kynna Frú Ragnheiði fyrir almenningi til þess að reyna að draga úr fordómum og hvetja til skaðaminnkandi hugsunar. Með fræðslu teljum við að fleiri geti tamið sér skaðaminnkandi hugsun, sem skilar sér svo vonandi í minni fordómum í garð viðkvæma skjólstæðingahópsins okkar.

Dagskráin verður létt og þægileg, við verðum með nokkrar stöðvar þar sem gestir geta kynnst mismunandi hliðum verkefnisins, svo sem heilbrigðishlutanum sem er t.d. meðhöndlun sára og sýkinga, nálaskiptahlutanum sem er þá búnaðurinn sem við bjóðum upp á og einnig verður í boði að æfa sig í endurlífgun með aðstoð sérhæfðs starfsmanns,“ útskýrir Edda. „Að lokum verðum við með fræðslu um Naloxone-nefúðann og afhendum þeim sem telja sig þurfa hann. Við erum mjög spenntar fyrir þessari kynningu og vonumst til að sjá sem flesta.“

Hvar á að leggja Blöndulínu 3?

Karl Ingólfsson skrifar
23. apríl 2024 | kl. 18:00

Svona er síminn hannaður til að stela athygli okkar

Skúli Bragi Geirdal skrifar
22. apríl 2024 | kl. 08:20

Hvar hvílir Jónas frá Hrafnagili?

Sunna Vilborg Jónsdóttir skrifar
21. apríl 2024 | kl. 06:00

Boðskapur frá forsetaframbjóðanda

Ásdís Rán skrifar
19. apríl 2024 | kl. 14:00

Stórkostleg upplifun

Haraldur Hauksson skrifar
14. apríl 2024 | kl. 14:30

Þjónusta þjóðkirkju við landsbyggðina

Guðrún Karls Helgudóttir skrifar
12. apríl 2024 | kl. 15:15