Fara í efni
Umræðan

Serena selur kökur og samlokur um helgina

Serena Pedrana, sem margir mun eftir síðan hún rak Orðakaffi, afragðs veitingastað á Amtsbókasafninu þar til fyrir nokkrum misserum, verður með kökur og samlokur til sölu á Hótel Akureyri í Hafnarstræti 67 um helgina; setur þar upp skammtímasölu, pop-up eins og það er gjarnan kallað.
 
Serena verður á hótelin bæði laugardag og sunnudag frá kl. 11:00 til miðnættis, eða þangað til allt verður selt.
 
„Ég ætla að baka þær kökur sem mest hefur verið beðið um á undanförnum árum, og auðvitað verða líka vegan og glútenlausir valkostir í boði,“ sagði Serena við akureyri.net í vikunni. „Fyrir samlokurnar keypti ég ítalska ciabatta brauðið frá Sandholt í Reykjavík og lét senda það hingað sérstaklega fyrir tilefnið,“ segir hún.
 
„Ég ætla að fylla þetta dásamlega brauð með besta ítalska gæðaálegginu, staðbundnu grænmeti frá Syðra Holti í Svarfardal og auðvitað smágrænu frá Rækta Microfarm, en nota ferskan íslenskan mozzarella sem er í ótrúlega miklum gæðum. Þetta verður einstök blanda af gæðahráefnum fyrir sérstaka eina helgi.“ Serana tekur fram að vegan samlokur verði einnig í boði.
 
Rækta Microfarm er fyrirtæki sem Serena og maður hennar, Giacomo Montanelli, stofnuðu haustið 2023 en þar rækta þau grænsprettur, sem þau kalla svo – microgreens, á ensku – á umhverfisvænan og sjálfbæran hátt. Um er að ræða alls kyns kryddjurtir, grænmeti og sælkerasveppi.
 
Serena segist hafa hengt upp plaköt um viðburðinn víðs vegar um bæinn og af þeim geti fólk rifið af miða og tekið með sér. „Allir sem koma með miða á pop-up viðburðinn og kaupa köku eða samloku fara í pottinn, þar sem einn heppinn vinningshafi hlýtur box af heimalöguðu súkkulaði frá mér,“ segir hún.
 
Umfjöllun akureyri.net um Rækta Microfarm í janúar 2024:
 
 
 
Serena Pedrana og Giacomo Montanelli eftir að þau stofnuðu Rækta Microfarm. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Fróðlegir fundir í kjördæminu

Sigurjón Þórðarson skrifar
05. október 2026 | kl. 07:15

Öflugt atvinnulíf þarf gott aðgengi að lóðum

Sunna Hlín Jóhannesdóttir skrifar
30. september 2026 | kl. 20:15

Beinum kastljósinu að atvinnulífinu

Karl Eskil Pálsson skrifar
29. september 2026 | kl. 20:15

Bókasöfnin okkar

Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar
28. september 2026 | kl. 06:00

Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein

Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar
27. september 2026 | kl. 06:00

Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
23. september 2026 | kl. 20:00