Sandra sú fjórða sem spilar 250 deildaleiki
Landsliðskonan Sandra María Jessen varð í gærkvöld fjórða fótboltakonan frá Akureyri til að spila 250 deildaleiki á sínum meistaraflokksferli.
Hún lék þá með Köln sem beið lægri hlut fyrir Bayer Leverkusen á útivelli, 2:1, í efstu deild Þýskalands.
Sandra, sem er nýbúin að framlengja samning sinn við Köln til ársins 2028, var að vanda í byrjunarliðinu hjá Köln en hún hefur verið þar í öllum átján leikjum tímabilsins og er í hópi markahæstu leikmanna deildarinnar með níu mörk.
Þær þrjár akureyrsku konur sem eiga fleiri deildaleiki að baki en Sandra eru Arna Sif Ásgrímsdóttir (302), Laufey Björnsdóttir (283) og Rakel Hönnudóttir (262). Arna Sif er sú tólfta leikjahæsta af öllum íslenskum knattspyrnukonum og leikur á ný með Þór/KA í ár, Laufey lék með Fylki á síðasta ári en Rakel er búin að leggja skóna á hilluna.

Akureyrsku konurnar þrjár sem eiga fleiri deildaleiki að baki en Sandra María. Á vinstri myndinni eru Rakel Hönnudóttir, til vinstri, og Arna Sif Ásgrímsdóttir í 7:0 sigri Þórs/KA á GRV á Þórsvellinum sumarið 2009. Rakel gerði tvö mörk í leiknum og Arna Sif eitt. Til hægri er Laufey Björnsdóttir í 1:1 jafntefli Þórs/KA/KS og ÍBV á Akureyrarvelli sumarið 2004. Laufey gerði mark Þórs/KA/KS þann dag. Myndir: Skapti Hallgrímsson
Sandra hefur leikið stærstan hluta ferilsins með Þór/KA, spilað 190 deildaleiki með liðinu, alla í efstu deild, og skorað í þeim 121 mark, en hún var Íslandsmeistari með liðinu 2012 og 2017, í bæði skiptin sem Akureyrarliðið hefur hampað þeim eftirsótta titli.
Hinir 60 leikirnir eru allir í efstu deild Þýskalands, með Leverkusen og Köln, og þar hefur hún skorað 10 mörk. Sandra er fjórði leikjahæsti Íslendingurinn í þýsku deildinni, á eftir Glódísi Perlu Viggósdóttur, Söru Björk Gunnarsdóttur og Karólínu Leu Vilhjálmsdóttur.

Sandra María í vikunni þegar tilkynnt var að hún hefði framlengt samning sinn við 1. FC Köln í Þýskalandi til sumarsins 2008.
Þessi naumi ósigur Kölnar gegn Leverkusen var afdrifaríkur því Köln missti af tækifæri til að fara upp fyrir mótherja sína og í fimmta sæti deildarinnar en með því hefðu Sandra og samherjar hennar blandað sér af alvöru í baráttuna um Evrópusæti.
Leverkusen klifraði upp í þriðja sætið með sigrinum en Köln er í áttunda sæti af fjórtán liðum þegar liðið hefur leikið 18 af 26 leikjum sínum á þessu tímabili.
Lista yfir leikjahæstu konur Íslands í deildakeppni má sjá í bókinni Íslensk knattspyrna 2025.

Sandra María Jessen, Stephany Mayor og Hulda Ósk Jónsdóttir fagna eftir eitt allra eftirminnilegasta mark Söndru á ferlinum. Hún braut þá ísinn gegn FH í lokaumferðinni 2017, þegar Þór/KA varð Íslandsmeistari. Hinar myndirnar eru teknar sumarið 2012. Þór/KA varð einnig Íslandsmeistari það ár. Myndir: Skapti Hallgrímsson
Ingibjörg er ljósið í myrkrinu
Allt á floti allsstaðar?
Gleymum við stundum litlu fyrirtækjunum?
Á að höfða til kjósenda eða sérhagsmunahópa?