Fara í efni
Umræðan

Opið bréf til sveitarstjórnar Akureyrarbæjar

Þann 10. febrúar síðastliðinn sendi félagið Drenglyndi erindi til bæjarstjórnar Akureyrarbæjar. Drenglyndi eru samtök foreldra og kennara sem beita sér fyrir því að halda lífsskoðunarfélögum á borð við Samtökin ‘78 úr leik- og grunnskólum. Erindið var sent til 16 einstaklinga, stílað á Fræðslu- og lýðheilsuráð og þeirra sem málið varðar.

Nú, 5 vikum síðar hafa aðeins tveir stjórnarmenn svarað að erindið sé móttekið. Enginn frá Fræðslu- og lýðheilsuráði hefur svarað.

Erindi Drenglyndis snýst um endurnýjun samninga bæjarins við Samtökin ’78. Í erindinu er bent á marghliða vandamál í þeirri samvinnu og er m.a. vísað í lög og rannsóknir, réttindi foreldra og barna, hlutverk skólans sem menntastofnunar og stöðu mála í öðrum löndum til samanburðar. Jafnframt er bent á það sé siðferðilega rangt að segja börnum að fólk geti „skipt um kyn“, að börn geti „fæðst í röngum líkama“ eða að fæðingargalli geti verið „sérstakt kyn“.

Málið er mörgum mikið hitamál. Foreldrar, kennarar og skólastjórnendur hafa deilt með meðlimum Drenglyndis miklum áhyggjum af þögguninni sem ríkir í kringum þessi mál. Á Akureyri hafa m.a. tveir kennarar hrökklast úr starfi vegna sannleikans sem þeir vildu halda í, að kynin séu aðeins tvö. Í tvígang hefur félagasamtökunum Andrými verið meinaður aðgangur að Amtsbókasafninu með starfsemi sína eftir að Samtökin ’78 sendu kvörtun um að meðlimur Andrýmis hefði „óæskilegar“ skoðanir á transmálum. Dæmin um slaufun og þöggun eru kristaltær og bæjarbúar þora ekki að tjá sig opinskátt um þessi málefni, hvað þá þegar lífsviðurværi þeirra eða mannorð er í húfi. Foreldrar og starfsfólk skóla hafa viðurkennt að þau upplifi þöggunartilburði og ritskoði sína eigin tjáningu. Orðræðan um að „neita transbörnum um tilverurétt“ eða „vera ekki með börnunum í liði“ er mjög særandi fyrir fólk sem ekkert hefur annað en velferð og hamingju barna að leiðarljósi.

Drenglyndi lagði mikinn metnað í erindið og gerði það stutt, skýrt og vel rökstutt svo bæjarfulltrúar, sem starfa við að tryggja velferð og vöxt bæjarins, þurfa ekki að leita langt eftir traustum heimildum og rannsóknum. Það er skammarlegt að slík vinna sé lögð á herðar foreldra, en skv. meðlimum Drenglyndis ætti fólk að geta gert ráð fyrir að geta treyst þeim ráðum og nefndum sem skipaðar hafa verið til þess að tryggja betri hag barnanna okkar. Þess í stað verðum við vitni að því að ríkisstyrkt og umdeild hugmyndafræði og lífsskoðanir sérhagsmunasamtaka séu tekin gild sem sannleikur, og þeim svo gott sem rúllað fram á rauðum dregli til að tryggja greiðan aðgang að börnunum okkar í gegnum menntastofnanir sem þeim ber samkvæmt lögum að sækja.

Fyrir hönd Drenglyndis,

Kristína Ösp Steinke og Víðir Orri Hauksson eru í félaginu Drenglyndi.

Bókasöfnin okkar

Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar
28. september 2026 | kl. 06:00

Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein

Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar
27. september 2026 | kl. 06:00

Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
23. september 2026 | kl. 20:00

Hvað ef það væri samfélagsgarður við Mýrarveg?

Eyrún Gígja Káradóttir skrifar
22. september 2026 | kl. 19:00

Ónýtt drasl-fólkið

Helgi Þórsson skrifar
15. september 2026 | kl. 20:00

Björgunarþyrla á Akureyri – staða máls

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
13. september 2026 | kl. 19:30