Fara í efni
Umræðan

Nýir sérfræðilæknar ráðnir til starfa á SAk

Magdalena Ásgeirsdóttir lungnalæknir og Hussam Mahmoud Sheta hjartalæknir. Myndir: sak.is.

Tveir nýir sérfræðilæknar voru nýlega ráðnir til starfa á Sjúkrahúsinu á Akureyri (SAk), þau Magdalena Ásgeirsdóttir lungnalæknir og Hussam Mahmoud Sheta hjartalæknir. Frá þessu er greint á vefsíðu SAk.

Magdalena er ráðin í 30% stöðu en hún hefur starfað sem yfirlæknir á Grensásdeild Landspítala undanfarin ár. Þar áður starfaði hún á Reykjalundi um 15 ára skeið, ásamt því að stunda nám í endurhæfingarlækningum. Hún hlaut sérfræðiviðurkenningu sem endurhæfingarlæknir árið 2019 en sérfræðinámi í lungnalækningum lauk hún frá Sahlgrenska háskólasjúkrahúsinu í Gautaborg árið 2005.

Hussam er sérfræðingur í hjartalækningum með sérþekkingu á hjarta- og æðasjúkdómum, með sérstaka áherslu á kransæðasjúkdóma. Hann lauk læknisprófi frá Háskólanum í Suður-Danmörku árið 2007 og doktorsprófi (PhD) frá sama háskóla árið 2022. Hann hefur lokið sérnámi í hjartalækningum og starfað sem sérfræðilæknir í Danmörku, meðal annars við Háskólasjúkrahúsið í Óðinsvéum. Auk þess hefur Hussam víðtæka klíníska reynslu frá bráðamóttökum og lyflækningadeildum, gjörgæsludeildum og heilsugæslu, bæði í Danmörku og Noregi.

Ráðning Hussams er tímabundin til eins árs og mun hann starfa á SAk í lotum, 2-3 vikur í senn.

Hljómburður í Matthíasarkirkju

Gísli Sigurgeirsson skrifar
10. mars 2026 | kl. 18:00

Treystu þjóðinni. Þú ert með tromp á hendi

Stjórn Stjórnarskrárfélagsins skrifar
09. mars 2026 | kl. 15:45

Hvernig fjölga Akureyringar sér?

Þóroddur Bjarnason skrifar
08. mars 2026 | kl. 11:00

Hvað felst í því að halda áfram aðildarviðræðum?

Erna Bjarnadóttir skrifar
06. mars 2026 | kl. 09:30

„Þetta er árásarstríð gegn smáríki“

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
06. mars 2026 | kl. 09:20

Bæjarstjórnar-klúður í húsnæðismálum

Benedikt Sigurðarson skrifar
02. mars 2026 | kl. 12:30