Fara í efni
Umræðan

Mikilvægt að hafa ratsjárbúnað áfram

Mynd: Skapti Hallgrímsson

Stjórnendur flugfélagsins Norlandair á Akureyri telja afar mikilvægt að ratsjárbúnaður verði starfræktur áfram á Akureyrarflugvelli vegna aðflugs, þangað til Isavia hefur hannað og birt nýtt aðflug. Það ætti að vera hægt á 12 til 18 mánuðum en félagið telur sennilegt að nýtt aðflug sem birt var á dögunum á Akureyrarflugvelli muni eingöngu nýtast stærri vélum í millilandaflugi næstu árin fyrir þá flugrekendur sem hafi slíka heimild. Enginn íslenskur flugrekandi hafi slíka heimild í dag.

Ratsjáraðflugið hefur verið notað til áratuga við aðstoða flugmenn við lendingu í slæmum veðurskilyrðum en hætt að var að nota ratsjána fyrir helgi. Sú ákvörðun Samgöngustofu virtist koma mörgum á óvart, en hvorki Twin Otter vélar Norlandair né Dash 8 – 400 vélar Icelandair geta notað nýjan aðflugsferil sem tekinn var í notkun.

Norlandair hefur óskað eftir fundi með Isavia til að fara yfir stöðuna.

Svör Norlandair

Akureyri.net óskaði eftir viðbrögðum Norlandair vegna breytinganna. Félagið sendi eftirfarandi skriflegt svar:

  • Þar sem ratsjárbúnaðurinn á Akureyrarflugvelli hefur verið tekinn úr notkun mun það hafa áhrif á rekstur Twin Otter véla Norlandair. Aðflugslágmörk fyrir lendingu úr suðri munu hækka, auk þess sem veðurlágmörk fyrir Akureyri sem varaflugvöll munu einnig hækka.
  • Norlandair hefur um árabil átt gott samstarf við Isavia, en lokun ratsjárbúnaðarins með svo skömmum fyrirvara kom á óvart, sérstaklega þar sem ekki hefur enn verið innleitt annað aðflug sem leysir ratsjárbúnaðinn af hólmi. Fyrirtækið hefur óskað eftir fundi með Isavia ANS til að fara yfir stöðuna.
  • Samhliða hönnun og innleiðingu á nýju aðflugi hefur Norlandair jafnframt óskað eftir því að þróuð verði önnur gerð GPS-aðflugs sem nýtist bæði félaginu og öðrum notendum Akureyrarflugvallar sem ekki hafa kost á þeim tækjabúnaði sem krafist er fyrir hið nýja aðflug.
  • Heppilegra hefði verið að þessi breyting ætti sér stað í réttri röð svo ekki komi til þjónustuskerðingar, þ.e. að nýtt aðflug, sem kæmi í stað ratsjárbúnaðar, hefði verið tekið í notkun áður en ratsjárbúnaðurinn var tekinn úr notkun.
  • Nýtt aðflug sem birt var á dögunum á Akureyrarflugvelli mun sennilega eingöngu nýtast stærri vélum í millilandaflugi næstu árin fyrir þá flugrekendur sem hafa slíka heimild. Enginn íslenskur flugrekandi hefur slíka heimild í dag.
  • Við teljum að Isavia gæti hannað og birt nýtt aðflug á 12-18 mánuðum og því afar mikilvægt að ratsjárbúnaður verði starfræktur á meðan hönnunarvinna stendur yfir.

 

  • Frétt akureyri.net í morgun:

Munu þurfa frá að hverfa frá í lélegu skyggni

  • Frétt akureyri.net á föstudaginn:

Skerðing á þjónustu og flugöryggi

Aukið frelsi og sanngjarnt verð

Sigurjón Þórðarson skrifar
05. júní 2026 | kl. 08:00

Af trjám, sól, skjóli og yndi

Ingólfur Jóhannsson skrifar
29. maí 2026 | kl. 06:00

Að þora ekki að ræða við nágranna sína

Ragnar Sverrisson skrifar
26. maí 2026 | kl. 13:15

Að loknum kosningum - takk fyrir okkur!

Sindri S. Kristjánsson skrifar
23. maí 2026 | kl. 12:00

Opið bréf til verðandi bæjarstjórnar

Erla Hrönn Unnsteinsdóttir skrifar
21. maí 2026 | kl. 10:10

Söguleg aftaka Hóla í Hjaltadal

Guðni Ágústsson skrifar
20. maí 2026 | kl. 21:00