Fara í efni
Umræðan

Bæjarráð: óskiljanlegt ástand á flugvellinum

Twin Otter vél Norlandair á Akureyrarflugvelli. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Bæjarráð Akureyrar hefur miklar áhyggjur af „þeirri þjónustuskerðingu sem orðið hefur á Akureyrarflugvelli“ við það að hætt var að nota ratsjáraðflug að flugvellinum þegar langþráður RNP AR aðflugsferill var tekinn í notkun á dögunum.

Ratsjáraðflug hefur verið notað til áratuga og mikil óánægja er með þá ákvörðun að hætta með ratsjáraðflugið, eins og akureyri.net hefur fjallað um, í ljósi þess að hvorki Twin Otter vélar Norlandair né Dash 8 – 400 vélarnar sem Icelandair notar í innanlandsflugi geta nýtt sér nýja aðflugsferilinn.

Bæjarráð samþykkti eftirfarandiá fimmtudaginn:

Bæjarráð Akureyrar lýsir yfir miklum áhyggjum af þeirri þjónustuskerðingu sem orðið hefur á Akureyrarflugvelli í kjölfar þess að LOC/ASR 01 aðflug var lagt af. Sú ákvörðun hefur neikvæð áhrif á rekstraröryggi Norlandair, sem hefur aðsetur á Akureyri, auk innanlandsflugs Icelandair.

Öruggt og áreiðanlegt innanlandsflug er mikilvæg forsenda virkrar landsbyggðarstefnu og skiptir miklu fyrir atvinnulíf, búsetu og heilbrigðisþjónustu.

Að mati bæjarráðs er það óskiljanlegt að slíkt ástand sé uppi á sama tíma og unnið er markvisst að uppbyggingu flugvallarins. Bæjarráð hvetur stjórnvöld til að grípa til allra þeirra aðgerða sem í þeirra valdi standa til að draga úr áhrifum þessarar ákvörðunar.

Aukið frelsi og sanngjarnt verð

Sigurjón Þórðarson skrifar
05. júní 2026 | kl. 08:00

Af trjám, sól, skjóli og yndi

Ingólfur Jóhannsson skrifar
29. maí 2026 | kl. 06:00

Að þora ekki að ræða við nágranna sína

Ragnar Sverrisson skrifar
26. maí 2026 | kl. 13:15

Að loknum kosningum - takk fyrir okkur!

Sindri S. Kristjánsson skrifar
23. maí 2026 | kl. 12:00

Opið bréf til verðandi bæjarstjórnar

Erla Hrönn Unnsteinsdóttir skrifar
21. maí 2026 | kl. 10:10

Söguleg aftaka Hóla í Hjaltadal

Guðni Ágústsson skrifar
20. maí 2026 | kl. 21:00