Fara í efni
Umræðan

Mikið svigrúm fyrir aukið millilandaflug

Mynd: Þorgeir Baldursson

Sigrún Björk Jakobsdóttir, framkvæmdastjóri Isavia innanlandsflugvalla ehf., segir að afkastageta Akureyrarflugvallar sé langt í frá fullnýtt, enda sé millilandaflug um völlinn einungis tvo daga í viku.

Nýverið þurfti easyJet að færa flug sitt til og frá Manchester frá laugardagsmorgnum til laugardagskvölds, vegna þess að hollenska flugfélagið Transavia fékk úthlutað lendingartíma á laugardögum á vellinum á sama tíma og Manchesterflug easyJet hafði verið. Sigrún útskýrði um hvað málið snýst í frétt akureyri.net í gær. Sjá hér:

Að frátöldum laugardögunum segir Sigrún Björk að nægt svigrúm sé til að taka við aukinni umferð millilandaflugs á Akureyrarflugvelli. „Afkastageta flugvallarins er langt í frá fullnýtt, enda einungis millilandaflug um flugvöllinn á þriðjudögum og laugardögum. Allir aðrir vikudagar standa flugfélögum til boða,“ bendir Sigrún Björk á og áréttar að það sé vilji Isavia innanlandsflugvalla ehf. að sem flest millilandaflug séu í boði til og frá Akureyrarflugvelli.

Á þessari mynd frá Isavia sést m.a. að hlutfall millilandafarþega af heildarfjölda farþega um Akureyrarflugvöll fer vaxandi. Enn er þó mikið svigrúm til frekari vaxtar.

Að sögn Sigrúnar getur Akureyrarflugvöllur annað 8 millilandaflugum á dag þá daga þegar það eru þrjár innanlandsvélar en aðra daga séu 9 flugtímar í boði fyrir millilandaflug. Reglan er sú að engar aðrar brottfarir eru leyfðar innan 110 mínútna fyrir alþjóðlega brottför flugvélar með fleiri en 80 sæti.

Svæðisborgin Akureyri

Sigurjón Þórðarson skrifar
13. júlí 2026 | kl. 06:00

Evrópusambandið, meira en tollabandalag

Steinar Harðarson skrifar
10. júlí 2026 | kl. 18:00

Við erum kölluð til kosninga

Gunnar Már Gunnarsson skrifar
09. júlí 2026 | kl. 15:00

Akureyri heilsar þér með bros á vör

Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar
02. júlí 2026 | kl. 21:00

Húsnæðiserfiðleikar ungs fólks innan ESB

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
02. júlí 2026 | kl. 20:45

Drífum í að stytta hringveginn

Jóhannes Gunnar Bjarnason skrifar
02. júlí 2026 | kl. 14:30